Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1945, Síða 9

Sameiningin - 01.04.1945, Síða 9
73 þjónustu þeirrar hugsjónar að blessa líf hinna undirokuðu og þjáðu, og samt vera frá því leystir að bera krossinn? Og þýður blærinn mun bera yður svarið frá heilögum Guði: “Nei, börnin mín, það er ómögulegt. Krossinn er óhj ákvæmilegur. Oss þykir vænt um krossinn sem tákn og sem skraut- grip, til að prýða oss með. Vér höfum miklar mætur á krossinum þegar hann kemur fram sem höfuðatriðið i sálm- um og andlegum ljóðum. Vér dáum krossinn, þá er hann ljómar í skæru og skín- andi ljósi í stórfeldum skáldverkum og sögum. En Guð al- máttugur vill sína oss það ljóst og greinilega að vér þurfum og líka að þekkja og virða hinn hrjúfa og grimma kross þjáninganna, sem alveg óhjákvæmilega staðreynd í lífi mannanna þá er þau vilja helga sig hugsjón þjónustunnar fórnfærslunnar og starfsins, er verði mannkyninu til bless- unar og Guðs málefni og ríki til eflingar á þessari jörð. Hann vill að vér börnin hans lærum að skilja þörfina að beygja sig niður þó til jarðar sé, til að hefja vorn kross, og bera hann í nafni Drottins vors Jesú Krists, til blessunar mönn- unum og til sigurs Guðs málefni á þessari jörð. Arnen. íslenzka lýðveldið endurreiát Erindi flutt á kirkjuþingi í Argyle, Man., 17. júní 1944. Eftir séra Valdimar J. Eylands, Winnipeg, Man. Nefnd sú, sem hafði með höndum undirbúning þessa kirkjuþings, ákvað fyrir löngu síðan að þessi samkoma í kvöld skyldi helguð umhugsun um það mál, sem mestu varðar nú á landi feðra vorra —■ íslandi — en það er endur- reisn hins forna íslenzka lýðveldis, sem í dag hefir náð fram að ganga eftir 680 ára samband þjóðarinnar við önnur ríki. Eg tel það mjög tilhlýðilegt að vér nemum staðar mitt í fundarstörfum vorum til þess einmitt að hugsa um þetta mál. Vér erum öll af íslenzku bergi brotin, og enda þótt vér séum þjóðhollir þegnar kjörlanda vorra, Canada og Banda- ríkjanna, höfum vér samt sem áður mikinn áhuga fyrir öllu

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.