Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1945, Blaðsíða 10

Sameiningin - 01.04.1945, Blaðsíða 10
74 því, sem gerist á íslandi, öllu því er snertir hag og farsæld stofnþjóðar vorrar. Mér er það ljóst að eg get ekki sagt ykkur eldra fólkinu neitt nýtt um sögu íslands, sem yður er ekki áður kunnugt. Samt tel eg það nauðsynlegt að rifja upp nokkra drætti úr sögu þjóðarinnar, einkum þá er snerta hina löngu og erfiðu baráttu fyrir stjórnarfarslegu fullveldi, takmarkið sem nú er náð á þessum mikla merkisdegi í sögu landsins. Hið upphaflega lýðveldi á Islandi var stofnað, eins og alkunnugt er, árið 930 á Þingvelli við Öxará. I dag mæna augu allrar þjóðarinnar, og annara þjóða, að því leyti sem þessum viðburði er veitt nokkur eftirtekt utan íslands, á þennan sama stað. Lýðveldið var stofnað af Norðmönnum, sem mátu frelsið meira en óðul sín í heimahögum, og vildu með engu móti beygja kné sín fyrir Haraldi konungi. Þeir settu þing á stofn er þeir nefndu Alþing. Hafði það löggjafar og dómsvald með höndum. Þetta var fyrirrennari og fyrirmynd hinna miklu lýðvelda nýtímans. Alþingi íslands hefir haldist við um aldirnar, og á 1000 ára afmælishátíð sinni árið 1930 hlaut það þá viðurkenning frá hinum mikilhæfa fulltrúa Bretaveldis, sem þá var þar staddur, að það væri “amma þjóðþinganna”. Lýðveldið stóð í hérumbil 330 ár, og er það tímabil tíðum nefnt gullöld íslands. Vitanlega dó ekki víkingslundin út um leið og lýðveldið .var stofnað; hinsvegar má til sanns vegar færa að hún lifir enn með þjóð vorri. Fyrsta verulega átakið sem reyndi á traustleika þessa skipulags kom nálægt 60 árum eftir stofnun þess, þegar ákveða skyldi hvort íslendingar ættu að taka við eða hafna kristinni trú, sem átrúnaði landsmanna. Um þetta mál var þjóðin þá klofin í tvo ákveðna flokka, annar þeirra var meðmæltur en hinn mótfallinn hinni kristnu trú. Leit svo út um skeið að kristindómurinn yrði að ásteit- ingarsteini, og að þjóðin myndi hans vegna steypast út í blóðuga boi’garastyrjöld. Þessu óláni varð þó afstýrt, mest vegna vitsmuna og mannkosta tveggja leiðtoga, Þorgeirs frá Ljósavatni og Halls frá Síðu. Þessir menn, sem báðir voru gæddir framsýnisgáfu og manngöfgi, stiltu til friðar og leiddu þetta mál til farsællegra lykta. Er hér um eitt hið glæsilegasta dæmi að ræða úr sögu þjóðar vorrar þar sem heilbrigt mannvit fær beislað ástríður og ofsa. Alt frá þeim tíma hefir átrúnaðurinn á Krist, og aðdáun á Óðni, guðspjöll-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.