Sameiningin - 01.04.1945, Page 15
79
þessara manna talaði af meiri einurð, né heldur af einlægari
löngun til umbóta íslandi til handa, heldur en Dr. Jón
Bjarnason, stofnandi þessa kirkjufélags. Ef nokkru sinni var
vökumaður á veggjum Zionar þá var það hann. Hann átti
til að bera ótakmarkað áræði, og áhuga umbótamannsins.
Hann sveiflaði sverði andans af slíkum mætti, og sálfræði-
legu innsæi að hann hlaut að fá áheyrn alstaðar. Þótt
ádeiluritum hans, eins og t. d. “Út úr þokunni”, og “ísland
að blása upp” væri einkum beint að þjóðkirkju íslands,
mun höfundurinn hafa talið þau eiga erindi til allrar þjóð-
arnnar, enda hittu þau víða í mark. Það getur naumast taiist
vafamál að raddir manna eins og séra Jóns Bjrnasonar,
séra Friðriks Bergmann, og annara á þessu tímabili áttu
sinn þátt í því að vekja þjóðarsamvizku íslands, og stuðlaði
þannig, þótt óbeint væri, að þeim sigri sem nú er unninn
með stofnun lýðveldisins.
Vér Vestur-íslendingar samfögnum íslandi og íslenzku
þjóðinni á þessum merkisdegi sem hún er nú búin að bíða
eftir í nær sjö hundruð ár. Vér höfum látið heimaþjóðina
vita huga vorn í þessu efni. Vér höfum samkvæmt boði
íslenzku ríkisstjórnarinnar sent fulltrúa heim á Þingvöll,
til að túlka þar huga vorn. Til þeirrar ferðar höfum vér
valið einn vorn ágætasta mann, Dr. Richard Beck, forseta
Þjóðræknisfélagsins. Hann er staddur á Helgafelli íslands
—- Þingvöllum í dag — og flytur þar ræðu fyrir vora hönd
og tjáir öllum íslendingum hjartaþel niðjanna í Vesturheimi,
og bænir þeirra fyrir landi og þjóð.
Auk þess hefir Þjóðræknisfélagið látið smíða eirskjöld
einn fagran, sem vér vonum að verði íestur á vegg á Al-
þingishúsi íslands til að minna á hugarþel þeirra Vestur-
Islendinga sem nú lifa, löngu eftir að orðin sem eru töluð
i dag eru gleymd, og þessi kynslóð er horfin af sjónarsvið-
inu báðu megin hafsins. Vil eg enda mál mitt með því að
tilfæra áletrunina á skildi þessum:
“íslendingar í Vesturheimi samfagna heimaþjóÖinni
í tilefni af endurreisn hins íslenzka lýðveldis
17. júní 1944.
Guö blessi ísland.
Vér höldum allir hópinn
þótt hafið skilji löndin.”