Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1945, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.04.1945, Blaðsíða 16
80 Orkin hans Nóa fundin Þetta virðist sumum, ef til vill, undarleg og ótrúleg frétt, en eftir síðustu heimildum að dæma, þá eru allar líkur til þess að hún sé sönn. I marz-hefti Magazine Digest stendur eftirfarandi grein, sem tekin er úr blaðinu Life Digest, sem gefið er út í Melborne í Ástralíu og er talið hið merkasta blað. Nú fimm þúsund árum eftir að dúfan, sem hann Nói hleypti út úr örk sinni, er strandað hafði á Ararat fjalli, kom til baka með olíuviðarlaufið í nefinu, vott þess að flóðið mikla væri að þverra, var flugmaður að nafni Valimar Roskovitsky að fljúga meðfram þessu söguríka fjalli í Armeníu, þegar aðstoðarmaður hans kallaði til hans og sagði: “Líttu þarna niður”. Roskovitsky gjörði eins og félagi hans sagði honum og sá einkennilega sjón. Það var geysilega stórt skip, með ávölu dekki, sem lá í ís á strönd vatns, sem var ísþakið. Flugmaðurinn flaug nokkra hringi í kringum skipið og eins nærri því og hann þorði, svo nærri að hann sá lögun þess skýrt. Möstrin voru stutt, en sterkleg, og dekkið ávalt, eins og þeir sem byggðu hefðu búist við að sjóir myndu ganga yfir það. Þegar flugmennirnir komu heim til flugstöðvar sinnar, sögðu þeir félögum sínum frá hvað þeir hefðu séð, en félagar þeirra gerðu gys að frásögn þeirra, og hlógu að þeim, — allir, nema yfirmaður þeirra, sem kvaðst vilja sjá þetta sjálfur, svo þeir fóru aftur og kafteinn þeirra með þeim, og eftir að fljúga nokkra hringi í kringum þetta einkenni- lega skip í fjallshlíðinni, lentu þeir, og varð kapteininum þá þetta að orði: “Eg held að það sem við höfurn séð, sé örkin hans Nóa”. Undir eins og kringumstæður leyfa, taka 'sérfræðingar sér ferð á hendur, til þess að skoða skip þétta og ganga úr skugga um hvort ummæli rússneska kapteinsins séu á rök- um byggð eða ekki. En nú þegar hafa þrjár rannsóknar- nefndir skoðað þennan fund og kemur þeim öllum saman um, að ekki geti verið um annað að ræða en örkina hans Nóa. Þegar skip þetta fanst, voru Rússar þátttakendur í

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.