Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1945, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.04.1945, Blaðsíða 17
81 fyrra heimsstríðinu og höfðu um annað að hugsa en forna viðburði, og sagan um fund þennan barst seint út, en þegar hún barst til Moskva voru tvær sendinefndir af þar til völdum hermönnum sendar til að að rannsaka fréttina. Báðar þessar rannsóknar nefndir komust á staðinn þar sem þetta nýfundna skip var, eftir að ferðast um ísbreiður, klungrast yfir íssprungur og klifra upp þverhnýpta íshamra. Þeir skoðuðu skipið nákvæmlega, mældu það, að innan og utan og tóku myndir af því. í örkinni, eða þessu skipi, eru fleiri hundruð af her- bergjum og eru í fullu samræmi við skipanir þær er Guð gaf Nóa: “Smáhýsi skalt þú gjöra í örkinni”. Sum her- berg'in eru ærið stór, auðsjáanlega g'jörð til þess að hýsa dýr, sem voru mikil vexti, svo sem fíla, rhinocerosis og hippopotamusi. í öðrum herbergjum er hátt til lofts og' hafa máske gíraffar og úlfaldar verið hýstir þar. í öðr- um eru básar, með sterkum milligerðum er líkjast mjög króm þeim, sem apar eru geymdir í nú á dögum í dýra- görðunum, og enn önnur herbergi í örkinni eru gjörð með fínum slám á þeirri hlið, sem fram að gangi arkarinnar veit, eins og þar væri um stórt fuglabúr að ræða. Lögun og frágangur á þilfarinu, sem er úr sterkum viðum, eða plönkum; virðast í fullu samræmi við fyrir- skipun þá er Nóa var gefin um, að gjöra glugga á örkinni og “búa hann til á ofanverðri örkinni”. Mjög skömmu eftir, að skýrslur og skilríki nefndanna sem fyrstar fóru til að rannsaka fund þennan komu til Rússlands, braust borgarastríðið út, og skilríkin og mynd- irnar, sem teknar voru af örkinni glötuðust, eða voru eyðilagðar, ef til vill, af mönnum þeim, er á þeirri tíð vildu útskafa og eyðileggja öll trúarleg áhrif ritningarinnar f heimsumrótinu að stríðinu loknu, gleymdist nálega þessi arkarfundur, en samt barst fréttin um hann til eyrna tyrkneskum liðsforingjum, og þeir réðu við sig að fara og rannsaka hvort nokkur flugufótur væri fyrir fréttinni. Þeir komust á staðinn, eftir mikla erfiðleika og fundu örkina, lítt skemda, en nálega innibygða í ís. Á meðal rannsóknarmannanna, var enskur sérfræð- ingur, sem kvað það engum vafa undirorpið, að efnið, sem skip þetta, eða örk væri byggt úr væri hinn forni gófurviður, sem ritningin talaði um og væri sérstök teg- und síprusviðar.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.