Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1938, Síða 8

Sameiningin - 01.01.1938, Síða 8
gagns fyrir svertingjana, en hvernig eiginlega, það var honuni ekki ljóst, og því síður hvar hann ætti að finnai efni til að gjöra nokkuð slíkt. Með þetta í huganum var hann einn dag á gangi í bænum Edgefield. Mætir honum þá svertingja kona, sem leiðir sex ára gamlan drenghnokka við hönd sér. Barnið æpti upp yfir sig af hræðslu, þegar hann kom nær, sleit sig af móður sinni og hljóp í dauðans ofboði út á mitt stræti. Þetta féll honum afslcaplega þungt: barnið var svona hrætt við hann, af því að hann var hvítur maður. “Eins og eg væri óargadýr!” sagði Willie við sjálfan sig. Og þó var honum vel við negrana. Honum þótti vænt um Unle Eury. Skyldi hann aldrei geta launað bréfin — dollars-seðlana? Þá sér hann alt í einu luisið aftur í hugan- um, og það er opið og — fult af bókum! Og Willie Buffing- ton sá annað meira á því augnabliki; hann gat hyrjað að koma þessu í framkvæmd! Hann leitar í vösum sínum og finnur tíu cent; kaupir fyrir þau fimm frímerki, fer inn í gistihússtofu og fær sér þar ókeypis pappír og umslög og skrifar fimm bréf, mönnum, sem hann þekti ekki. Biður hann þessa menn að senda sér hók eða bólcarverð í lestrar- safn fyrir allslausan sverlingjalýðinn þar í nágrenni sínu. En ef viðtakandi geti það ekki, þá að senda sér eitt frímerki aftur, svo hann geti komið þessari beiðni til einhvers annars manns. Þessi fimm bréf voru skrifuð rétt fyrir jólin, árið 1931, þegar “kreppan” var hörðust. Það sýndist vera glapræði að hugsa sér verulegan árangur af slíku betli. Enda liðn tveir mánuðir áður en hann fékk svar. En þá kom Hka gjöf, sem uin munaði. Þúsund bækur, frá svertingjasöfnuði norður í New York. Willie Buffington mintist á orð ömmu sinnar, þegar hann starði voteygur á þessa ótrúlegu gjöf: “Fáðu Drotni það litla sem þú hefir. Hann gjörir kraftaverkið.” En nú var húsið eftir. Willie safnaði saman svertingj- um í nágrenninu; þeir hjuggu tré í húsveggina og skutu sam- an fé—einhvern veginn—fyrir annað, sem við þurfti. En það var ekki af miklu að taka. Hvað eftir annað leit svo út sem þeir yrðu að hætta. “Við urðum að reisa húsið í trú,” segir Willie, “og þessvegna heitir það ‘trúarskáli.’ ” Á næstn jólum var húsið komið upp; átján-og-tuttugu fet, með reykháfi úr steini og opnu eldstæði. Bókum er rað- að í snotrar hyllur. Blöð og tímarit, gömul flest, sem góðir

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.