Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1938, Síða 9

Sameiningin - 01.01.1938, Síða 9
7 menn hafa gefið, eru þar í bunkum á stóru borði. Stólar voru líka gefnir og annar húsbúnaður, og radió. Svertingj- arnir komu þar saman til að lesa, hlusta á útvarpið og skemta sér með leikjum og söng. Og umsjónarmaðurinn er Uncle Eury. Árið eftir, rétt fyrir jólin, kom Willie upp öðrum “trúar- skóla,’” með þúsund bókum, í grend við næsta þorp. Og næsta ár á jólaföstu var þriðji skálinn fullgjör, og hlaðinn bókum eins og hinir. Þegar það hús var fullgjört, var Willie Buffington búinn að fá tækifæri til að ljúka við skólamentun. Hann hefir stundað nám við Furnam University. Hvort sem hann kemst nokkurn tíma í prestsemhætti eða ekki, þá er óhætt um það, að önnur eins trú og annar eins vilji á enn eftir að koma miklu til leiðar, ef honum endist aldur — undir handleiðslu Guðs. G. G. Einátök ráðátöfun Varla hefir nokkur fregn, sem frá íslandi hefir horist á seinni árum, vakið meiri undrun en atburðir þeir, er nýlega hafa gerst í sambandi við skipun í dósentsembættið í guðfræði við háskólann og síðar veitingu þess. Ekki er þetta svo mjög vegna þess að vér hér á vesturslóðum höfum svo nákvæma þekkingu á öllum málavöxtum þessu viðvíkjandi, að það nægi til að gera upp á milli þeirra manna, sem hlut eiga að máli, hehlur miklu fremur hitt, að hvernig sem skoðun manna er um valið, getur ekki dulist að aðferðin við að veita embættið er algert gjörræði í garð íslenzkrar kirkju og háskólans. Þetta staðfesta tildrögin. Menn minnast jjess, að um embættið sóttu í fyrstu fjórir menn; séra Björn Magnússon, séra Benjamín Kl'istjánsson, séra Sigurður Einarsson og séra Garðar Svavarsson. Hinn síðastnefndi dróg umsókn sina til baka. Hinir þrír gengu undir samkepnispróf það er háskótinn ráðstafaði. Dóm- nefndina skipuðu þeir dr. Jón hiskup Helgason, prófessor Magnús Jónsson, prófessor Ásmundur Guðmundsson, séra

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.