Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.01.1938, Side 11

Sameiningin - 01.01.1938, Side 11
9 Jólakertið hennar mömmu Eftir séra N. Steingrím Thorláksson. Man eg ekki ei'tir neinu betur frá æsltuárum mínum en jólakertunum, sem okltur börnunum voru gefin á hverri jóla- nótt. Jólamaturinn þótti mér góður, því er ekki að neita, enda var hann enginn hversdags matur. Og gaman var að fallega laulabrauðinu. En lang dýrlegast af öllu var þó jóla- kertið. Að halda á því með logandi Ijósinu báðum höndum og eiga það — ekki hafa það til láns —- það tók öllu fram. Og það var mamma, sem steypt hafði kertið. Og hún, sem kveikti á því fyrir drenginn sinn. Eitt rekur mig minni til, sem kom fyrir einu sinni á jól- unum. Bóndinn frá Arnstapa, næsta bæ við okkur, kom einn morguninn og hitti móður mína. Þau tala saman; en alt í einu segir hann mitt upp úr samtalinu: “Nú man eg nokkuð, Lovísa mín; eg á ekkert jólakerti.” Okkur börnunum þótti gaman að þessu, þegar við heyrðum það. En ekki held eg að við höfum kent neitt í brjósti um hann fyrir það að hafa eklti eignast neitt jólakerti. En það er víst að móðir mín gaf honum bæði jólakerti og jólaveitingar. En þó mér nú þætti jólakertið og ljósið þess dýrlegt og væri barnslega hrifinn af því, sérstaklega vegna þess að Ijós- ið var mitt, eg átti það, og jólanóttina þótti mér vænna urn fyrir það, þá man eg ekki til þess að eg setti kertaljósið í samband við fæðing Jesú, jólabarnsins — að með fæðing hans hefði í heiminn komið mannanna dýrlegasta Ijós. Man heldur ekki til þess að okkur börnunum hafi verið bent á það. Það var ekki fyr en löngu seinna að eg gerði það og þá í sam- bandi við jólatréð og ljósadýrðina á því. Eg gerði því ávalt tilraun til þess þá að festa í huga barna sunnudagaskóla míns, að Ijósadýrð trésins ætti að minna þau á dýrð Jesú og ljós eilífa lífsins og kærleika Guðs, sem væri Guðs jólagjöf til okkar mannanna með fæðing Jesú. Þá mintist eg jólakertis- ins heima frá æskuárunum, og hve fallegur siður það hefði verið að gefa jólakerti jólanóttina. Vafalaust var það tjón, að kertaljósið mitt á jólunum var ekki látið minna mig á Jesú og kærleiksljósið Guðs til okkar mannanna, sem veittist okkur með komu hans í heim- inn. Ef eg, barnið og unglingurinn, með kertaljósið milli

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.