Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1940, Page 7

Sameiningin - 01.05.1940, Page 7
(59 leg lýsing á þvi sem gerðist, eða alt yrði markleysa. Nú mun þetta fremur htasa við sem sígild frásögn er í dæmi- söguformi og á líkingamáli útfærir hið tilþrifamikla orð: “í upphafi skapaði Guð himin og jörð.” önnur dæmi eru hliðstæð. Að kannast við að sífelt er þörf á þroska í skiln- ingi á opinberun Guðs, er eykur gildi hennar en rýrir ekki, fellur inn í þá skoðun er hjá oss ríkir viðvíkjandi Guðs orði. Afstaða vor hefir mótast af því að vera á verði gegn öfgum blindrar íhaldssemi og einnig' öfgunr róttækni, sem ekki kann skil á verðmætum. Starfslega eigum vér einnig nokkra sérstöðu, þó veiga- lítil sé okkar viðleitni borin saman við stærri deildir kirkj- unnar. i engri deild hérlendrar kirkju geta leikmenn eins látið til sín taka og raun er á hjá oss. Venjulega er ætlast til að kirkjuþing1 séu skipuð kennimönnum og leikmönnum í jöfnum hlutföllum. Hjá oss er tala leikmanna margföld við tölu presta. Sambandskirkjufélagið íslenzka mun í þessu hafa siglt í okkar kjölfar. Annars ber slíkt ekki við. Þetta ber ekki að skoða sein marklaust aukaatriði, heldur sem heilbrigðisvott er ætti skilið að verða til fyrirmyndar Út á við. Það væri verulegt spor í þá átt að efla kirkjulega lýðstjórn. Sama gildir um fullkomið jafnrétti karla og kvenna á kirkjulegum vettvangi. í því efni hefir kirkjufélag vort verið á undan flestum öðrum kirkjufélögum. —■ Sterk áhrif eru að verki á öllum sviðum mannlífsins hér í álfu að móta alt í sama horf, svo öll fjölbreytni hverfi og allir verði eins. Þetta nær einnig inn á svið kirkjunnar. Félagslegt fyrirkomulag hefir orðið svo margbreytt og l'lókið, að h;ettan er, að það skyggi á málefnið fremur en að hefja það. Ráðið, sem gripið er til, til lækningar flestu, er að stofna ný félög. Festa menn svo trú sína á að þetta eða hitt fé- lagið, sem mest ber á í svipinn, sé einkaráð til umbóta. Ljóst dæmi er Boij Scout hreyfingin, sem nú er mjög hafin sem úrlausn á uppeldisvandanum í lífi drengja vorra. Þó ekki beri að efa að ýmsir góðir leiðtogar í þessu telagi hat'i ágæt áhrif á drengi, er það greinilegt einkum í stórborgum, að með því að ganga þar inn, hverfa yfirráðin yfir piltun- um að miklu leyti frá heimilunum og foreldrum. N"i11 það draga enn þá meira úr skilningi á því, að ekkert getur full- nægt í stað heimilisáhrifa i uppeldi. — Margt af þessu nær nú einnig til vor, en yfirleitt hefir þó félagslegt fyrirkomu- lag hjá oss verið óbrotið. Nú eru margir ágætir menn kirkjunnar að fá opin augu fyrir því að trúin á félagsum-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.