Sameiningin - 01.05.1940, Side 9
71
ist var úr þessu bætt. Vil minna á að viðarlcol eru notuð
í glóðarkerum til þess að hita á sér hendurnar; aðra upp-
hitun notar elcki almenningur. Kom það sér því vel fyrir
gamalmenna-heimilið í Tokvo, sem lúterska kirkjan stend-
ur fyrir, að keisarafrúin gaf því af nærgætni sinni góðan
forða af viðarkolum. Hún hefir oft áður styrkt með
gjöfum stofnunina. Stofnunin er sérstaklega í áliti meðal
innlendra, og þykir alt fyrirkomulag þar svo gott, að Jap-
anar taka það sér til fyrirmyndar vð slíikar stofnanir. En
viðvíkjandi erfiðleikunum skal tekið fram, að trúboðar
okkar eru ekki að kvarta. Segja að sér sé ekki vandara
en öðrum, þó þau þurfi að neita sér um ýmislegt-
Viðhorf það, sem á hefir verið minst gerir það, að
óhægt er um alt framsóknarstarf, enda verða trúboðarnir
að draga sig í hlé. Stjórninni hættir til að líta á þá sem
“agenta” annara þjóða. Ekki stafar það samt af neinni
lítilsvirðing á kisrtindómi; því öll trúarbrögð, kristindómur-
inn þá líka, eru mikils metin þjóðmenningarlega. Sem
merki þess má nefna, að sérfræðingar, sem framarlega
standa meðal búddista, shintóista og kristinna manna (tel
líklegt að þeir séu japanskir), hafa nýlega verið kjörnir til
þess að flytja erindi í aðalborgum landsins um siðmenning-
argildi trúarbragðanna í því skyni að innræta fólki verð-
mæti þeirra að þessu leyti. Hygg eg að standi að einhverju
leyti í sambandi við tímamótin þessi í Japan; því búist er
við að á þessu ári komist á meira jafnvægi á alla hluti með
þjóðinni. Tímamótin stórmerkilegu og hátíðlegu eru þau,
að í ár eru 2,(500 ár síðan ríkið var stofnað að tilhlutun og
undir umsjón hinnar guðlegu sólardrtoningar, frummóður
allra keisaranna. Er ekki ólíklegt að með tilliti til þess
hafi hinn nýi helgidagur verið skipaður síðastiðið haust,
fyrsti dagurinn í hverjum mánuði. Er hann helgaður
augnamiðinu því að ný Asía komist á og er það í samræmi
við það, sem leiðtogar þjóðarinnar hafa viljað koma heim-
inum til þess að trúa að sé tilgangurinn með stríðinu, sem
þeir kölluðu fyrst “Incident,” svo “Emergency,” og nú allra
síðast “Holy Work.” Þessi dagur á að vera nokkurs konar
sjálfsafneitunardagur eða “föstudagur.” Veitingastofur og
nautnahús lol'a að láta ekki í té á honum ýmislegt það,
sem annars er hversdagslegt. En lögbönnuð er tóbaks- og
vinnautn þennan dag.
Skömmu eftir komu Octavíusar og Línu til Ivobe hafði
hann altarisgöngu í kirkjunni í Austur-Kobe, þeirri, sem