Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.11.1942, Side 5

Sameiningin - 01.11.1942, Side 5
131 öllum þjóðum. Það er samtengingarafl, sem enginn ófriðui fær að fullu rofið. Undir því að varðveita það, og efla er öll framtíðarheill komin. Eg gerði mér von um að eins og eg var að kanna nýja stigu landafræðislega til aukins mats á landi mínu og þjóð, eins mundi hin kirkjulega stefna, sem eg var að sækja, að einhverju leyti gefa mér nýja sjón á akri kirkjunnar og hlutverki til að hefja það er fyrir vakir. Eg varð ekki fyrir vonbrigðum hvað þett.a snertir. U.L.C.A. Sameinaða lúterska kirkjan (U.L.C.A.) er tuttugu og fjögra ára gömul. Hún myndaðist þannig að þrjár lútersk- ar deildir sameinuðust. Það var einingarstefna, sem þar réði. Hreyfingin í einingarátt er eitthvert heilbrigðasta einkenni samtíðarinnar í kristilegu tilliti. Oft áður og fram á þennan dag hefir borið á þeirri hugsun að eindrægni kæmist á eftir þeirri leið að ein deild kristninnar gleypti aðra eða að minsta kosti yfirbugaði hana. Þetta hefir ekki gefist vel. Venjulega hefir það fjarlægt menn í stað þess að draga saman. Nú er sú viðleitni fremur að lærast að leiða hugina saman með því að kynnast og meta það, sem menn eiga sameiginlegt, í stað þess að einblína á það, sem aðskilur. Þetta gefst mikið betur. Viturlegast reynist að snúa sér fyrst að því að greiða fyrir samkomulagi með þeim, sem næstir eru hver öðrum. Þannig verði ákveðnust spor tekin til sannrar einingar. Eftir þeirri leið varð Sam- einaða lúterska kirkjan til og í þeim anda hefir hún áfram verið samdráttarafl í kristilegu tilliti. Kirkjufélag vort bar gæfu til þess að hverfa frá einangrunarstefnu og tengjast samvinnu við þessa heild. Með því sneri það baki við þeirri stefnu að það sé heilbrigðast að vera fráskilinn öðrum kristnum mönnum vegna ímyndaðra eða verulegra yfirburða er maður sjálfur hafi til að bera og halda sig utan við straum samtíðar kristninnar. “Að þeir allir mættu vera eitt” er hugsjónin. Þingmenn vorir og dvalarsiaSir Fjórir erindrekar frá kirkjufélagi voru sóttu þingið í Louisville, tveir leikmenn og tveir prestar. Grettir konsúll Jóhannsson frá Winnipeg og G. J. Oleson lögregludómari frá Glenboro skipuðu leikmannasessinn, en séra Egill H.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.