Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1942, Síða 6

Sameiningin - 01.11.1942, Síða 6
132 Fáfnis og eg vorum málsvarar kennimannastéttarinnar. Okkur bar að garði mismunandi, en í Chicago hafði eg hitt konsúlinn við íslenzka guðsþjónustu, er eg flutti og hann var svo vænn að sækja. En allir hittumst við ekki saman fyr en í Louisville. Urðum við þar í nánu nágrenni, þeir þrír Canadamennirnir í Seelbach gistihöllinni en eg í Henry Watterson Hotel. Vegna óvissu frarn á síðustu stund um að geta farið, hafði eg ekki getað trygt mér húsnæði fyrir- fram eins og hygnum ferðamönnum hæfir og þeir samherj- ar mínir höfðu gert, heldur varð að treysta á gæfuna eftir að á staðinn var komið. Gafst það vonum betur. Nafnið Watterson dróg athygli mína sem nafn hins þjóðkunna blaðamanns er stofnaði hið víðkunna dagblað Courier- Journal í Louisville. Er það enn í fremstu röð hinna beztu blaða í landinu. Er gistihöllin ekki til vansa nafninu, því það er hinn ákjósanlegasti verustaður. Þingsalurinn var í Brown Hotel skamt frá, sem var aðal aðsetur þing- gesta. Iceland Ýmsir fundir voru haldnir áður en þingið sjálft hófst. Fyrst og fremst hélt Luiheran Broiherhood U.L.C.A. stefnu sína dagana á undan. Meðal smærri funda má telja mót forseta kirkjufélaganna í U.L.C.A. Áttu þeir ráðstefnu með starfsfyrirliðum Board of American Missions. Kom eg því til Louisville á þriðjudag 13. okt., eða degi áður en þingið hófst. Fyrsta kvöldið lá ekkert ákveðið fyrir mér, og gintist eg því til að sækja hreyfimynda leikhús. Var myndin Iceland með Sonja Heinie í aðalhlutverki þar á boðstólum. Eg var búinn að sjá ummæli um myndina í blöðum og að Reykvíkingar væru ekki hrifnir af henni, en sjón er ávalt sögu ríkari. Það er ekki á hverjum degi að maður sér blasa við sér á hverju torgi ílanna auglýsingar með “Ice- land” að titli. Myndin er forsmán. Þar er ekki minsti vottur af sönnum veruleika hvað snertir íslenzka staðhætti eða líf í sambandi við dvöl setuliðs Bandaríkjanna í land- inu. Veruleika blæ á þó eflaust skautakonan fræga að setja á þetta “pródúkt,” því hvers mundu menn fremur vænta á íslandi en íss. Því er treyst að amerísk alþýða ekki glöggvi sig á því að ef á skauta skal fara í Reykjavík verður það að jafnaði að vera eins og hér á Kyrrahafs- ströndinni, á ís, sem er frystur með nútíðar tækjum véla-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.