Sameiningin - 01.11.1942, Page 10
136
hafa fræg orðið. — Hitt merkisafmælið, sem tilheyrir þessu
ári, minnist þess að fyrir hundrað árum hóf Christian
Frederick Heyer (venjulega nefndur “Father” Heyer) trú-
boðsstarf sitt á Indlandi, en frá honum stafar hið mikla
kristna kirkjufélag á Indlandi er nefnist “The Andhra
Evangelical Lutheran Church.” Telur það nú 195,656
sálir. Einkunnarorð Heyer “I am ready now” — “eg er til--
búinn nú þegar” — lýsa honum vel og voru svar hans við
þörf Indlands og kvöð kirkjunnar. Útbreiðslustarf kirkj-
unnar var á þinginu mjög tengt við minningu þessara
merku frumherja og hugsjónir þeirra. Á framstafni þing-
salsins yfir altari var véggmynd mikil er sýndi landabréf
heimsins. Á því miðju var hin óviðjafnanlega Kristsmynd.
Thorwaldsens “Komið til mín allir —” en á landabréfið,
sem táknaði þörf heimsins, var skráð öðru megin við
myndina THE CHURCH MUST BE PLANTED en hinu
megin I AM READY NOW. Þessi táknmynd hóf þannig
mannlega þörf, kærleiksþel Guðs í Jesú Kristi og lærisveins
fúsleikann að vera boðberar. Á þessum staðreyndum vill
kirkjan byggja starf sitt. Sérstakt erindi um Muhlenberg
flutti Dr. Paul H. Roth frá Northwestern Seminary, en Dr.
A. R. Wentz frá Gettysburg Seminary flutti minningarræðu
um Heyer. Erindin voru bæði frábær. Tilfinning var
fyrir því að nútíminn þyrfti á anda og áhrifum þessara
frumherja að halda.
Þjóðminning Muhlenbergs
Hvað Muhlenberg snertir hefir ekki aðeins lúterska
kirkjan heldur einnig Bandaríkjaþjóðin fundið ástæðu til
að minnast þess að tvær aldir eru liðnar síðan hann hóf
starf sitt í Ameríku. Þjóðþing Bandaríkjanna skipaði
fimtán manna nefnd til þess fyrir hönd þjóðarinnar að eiga
þátt í aðal hátíðahöldum í sambandi við Muhlenberg af-
mælið við Muhlenberg College í Allentown, Pennsylvania
er stóð í rúma viku um mánaðamótin maí og júní á liðnu.
vori. Roosevelt forseti var heiðursforseti nefndariimar, en
báðir þingdeildaforsetarnir Wallace og Rayburn voru
einnig til forystu. Aðrir nefndarmenn voru nafnkunnir
þjóðleiðtogar í ríki og kirkju. Einnig gaf þingið út virðu-
legt minningarrit um Muhlenberg. Tilefnið til þessarar
þátttöku þjóðarinnar í þessum hátíðahöldum er ekki langt
sótt. Hann sjálfur var áhrifamikill frumherji í lífi kirkju