Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1931, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.11.1931, Blaðsíða 20
338 bænarvers, eða orð Jesú? Við gætum tæplega gert grein fyrir því, Eitt vitum við: það sem að göfugast var í eðli okkar og Guði lík- ast, bar sigur úr býtum. Sigurinn kom, sökum samfélagsins við Guð. “Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér.”— Nú skulum við setja dæmið upp dálítið öðru vísi. Við erum nú ekki lengur ung, sem við eitt sinn vorum. Við erum orðin fullorðin, árin liafa liðið hjá, þögul og hraðfara, með fallþunga tímans að baki sér. Skýjaborgir bernsku áranna hafa hrunið,— margar hverjar. Vonbrigði og barátta lífsins hefir sorfið all-mjög að mörgum. Ef til vill er eitthvað sérstakt sem hrellir hugann: framtíð barnanna okkar, heilsa ástvinanna, óviss æfikjör,—eitthvað alvarlegt, sem arnar að. Lífsbyrðin hefir orðið ofurefli. Skyldur lífsins hafa ofþyngt okkur og orðið því þyngri, sem lengra sóttist upp á hálendi æfireynslunnar. Stundum erum við í því hugarástandi að traustið til sam- ferðafólksins hverfur. Við eigum augnablik, þegar við jafnvel efuðumst um réttlæti Guðs. Þegar svo er komið, þá stöndum við á krossgötum hættulegrar reynslu. Þá er guðssamfélag sálarinnar í hættu statt. Þá er eitthvað líkt með okkur og Elía spámanni forðum, er hann sagði: “Nóg er nú Drottinn, ’át mig deyja, ekki er eg betri en feður mínir.” Sum af okkur höfum átt þá æfi- reynslu—höfum lifað þau augnablik—þegar við þorðum ekki að Hfa;—fanst sem lífið sjálft væri okkur ofurefli; og lífið léki á taflborði, sem við skildum lítið eða ekkert í. En mitt í dimmunni leiftraði skyndilega ljós um okkur, sem Pál forðum. Við urðum fullviss um nálægð frelsarans. Og storm sálarinnar tók að lægja. Efinn dvínaði. Skammdegis- myrkrið sem hafði grúft sig yfir þreytta sál varð nú að víkja fyrir geislum trúarinnar. ViS sættum okkur við hin erfiðu kjör. Þau birtust okkur í nýju ljósi, ummynduð af geisladýrð Guðs. Okkur fanst heilagir englar umkringja okkur á alla vegu. Sem í leiftur ljósi væri, skildum við það, að við vorum eitt með Guði. Og örugg og vonglöð í fullvissunni um nálægð Guðs hófum við göngu lífsins á ný. Við fundum okkur innilukt af helgum föðurörmum Guðs. Fyrir stuttu síðan las eg í íslenzku tímariti dálitla frásögu, um íslenzka konu, sem einmana og yfirgefin lá andvaka að nóttu til, i litlu leiguherbergi og hlustaði á andardrátt fjögra föðurlausra l)arna sinna. Eátækt, hulinn harmur, einstæðingsskapur og óvissa

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.