Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1931, Blaðsíða 29

Sameiningin - 01.11.1931, Blaðsíða 29
347 Kobe telja um ioo þarlenda meÖlimi. Alls heíir hann skírt og fermt um 200 manns.— Hin öröugu byrjunarár trúboðsstarfsins eru á enda. Án að- stoðarmanns getur nú kristniboðinn flutt hinni heiðnu þjóð fagn- aðarerindi Krists á hennar eigin tungu. Frá Japan fór séra Octavíus heimleiðis með konu og fjögur börn, 24. maí, 1931. Fóru ]?au sjóleiðis, sem leið liggur til Ind- lands. Voru þau fimm vikur á skipsfjöl, komu víða við og hafa írá mörgu aö segja. Hér verður engin ferðasaga sögð, en einungis getið nokkurra staða á leið ferðafólksins, er benda á hina breyti- legu för þess. í Kína var komið við í Shanghai, þá í Hong Kong, er tilheyrir Bretum. Til Manila, á Filippusareyjum var og komið og þá til Singapore, aðal verzlunarborgar í eignum Breta í sundunum inn að Indlandshafi. Komið var við í Kólumbó, á eynni Ceylon. Þaðan lá för trúboðanna áfram um Indlandshaf til Rauðahafsins, sem kunnugt er af frásögum biblíunnar. Þaðan var farið um Súez- skurðinn til MiðjarSarhafsins. Á þeirri leið var komið við í hinni fornfrægu höfuðborg Egipta, Kairó, og Alexandríu, verzlunarstað miklum, er ber nafn Alexanders mikla. Kemur borg sú víða við sögu fornkristninnar. Þaðan lá leiðin til Neapel (Naples eða Napoli), sem talin er ein fegursta borgin á ítalíu og svo þjóðleg. að ítalir segja: "Að sjá Neapel—og deyja svo."—Gegnt Neapel blasir við Vesúvius. Á þessum stöðvum var ferðafólkið 4 júlí. I Róm, hinni “heilögu borg" páfans, Páls postula og Thorvaldsens, staðnæmdist íslenzki ferðamannahópurinn frá Japan og skoöaði þar helgar stöðvar. í Feneyjum, við norðurhluta Adríahafsins, var áfangastaður áður en lagt var upp yfir hin heimsfrægu Mundía- fjöll (Alps), áleiðis til Þýzkalands. Þar voru það einkum stöðvar, knýttar við sögu Lúters, er trúboðann og fjölskyldu hans fýsti að sjá. — Frá Berlín til íslands var farið um Kaupmannahöfn. Þaðan tók ferðafólkið sér far 1. ágúst með Gulifossi og kom til Reykjavíkur þ. 8 s. m.—Sá trúboSinn þá i fyrsta sinn föðurland sitt. Daginn eftir prédikaði hann við síðdegis guðsþjónustu í dóm- kirkjunni á íslenzku. Á Islandi dvaldi trúboðinn og f jölskylda hans tæjian mánuð, sem gestir trúboðsfélaga heima. Var ferðast allvíða og utan Reykjavíkur prédikaði hann í ýmsum kirkjum, og meðal annara á Hólum. I fylgd með trúboða og f jölskyldu hans var S. Á. Gíslason, ritstjóri Bjarma og vinur vestur-íslenzkrar kristni. Ritaði hann mjög vinsamlega grein um séra Octavíus og dvöl hans á Islandi i

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.