Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1933, Síða 14

Sameiningin - 01.08.1933, Síða 14
160 nemur staðar á miðju leiksviði; hún hefir skrifað blað í hendi og fer að lesa. Það er ekki inngangsbæn, heldur nafna- listi—nöfn á leiðandi mönnum, sem sækja samkomur í niust- erinu. Hiin iýsir blessun yfir þeim upplesna hópi, og kveða þá við “amen” um allan salinn. Síðan byrjar athöfnin sjálf. Gjörist nú frúin eins mikil- virk—segir áhorfandi—eins og átján liðsforingjar í kosn- ingasennu, lcvöldið á undan kjördegi. Hún talar í hljóðauk- ana, og síðan í telefón; leiðir söngflokkinn; gefur undirtyll- um bendingar; flytur prédikun; tekur þátt í söngleik trúar- legum, sein hún hefir sjált' samið; minnir á, þegar hik verð- ur; heilsar þeim, sem seint komu inn; skrifar með ritblýi sér til minnis af og til; hvíslar að sendimönnum. Svo verður hlé; hljóðfærasveitin spilar og söngflokkurinn syngur: “Everijbody happy” (“Allir glaðir”), en húsþjónar fara með bekkjum aftur og taka við offrinu. Tíðagjörðin stefnir æfinlega að einhverju hámarki; sér- staklega ræðu, til dæmis, eða þá skírnarathöfn, eða einhverju öðru. Komið hefir fyrir að þrjú hundruð manns hlutu dýf- ingar-sldrn sama kvöldið í skírnarkeri' miklu uppi á leiksvið- inu. En hvað sem haft er um hönd, þá er frúin sjálf eins og brennidepillinn í öllu saman. Hún virðist búa vfir einhverju seiðmagni. Allra augu mæna þangað sem hún er; þeir eru frá sér numdir; sumir, sem næstir eru, reyna jafnvel að snerta klæðafald hennar. Allur þorrinn ber lotningu fyrir “systur Aimée” eins og heilögum dýrlingi, og Li'úir á einlægni hennar og sakleysi hverju sem fram vindur. Og því verður ekki neitað, að oltið hefir á ýmsu fyrir henni, þessari Debóru vorra daga. Nafn hennar hefir ekki ófyrirsynju komist á framsíðurnar.—Aimée er borin og barn- fædd í Ganada. Hún var við skólanám seytján ára gömul austur í Ontario, þegar hún kyntist ungum trúboða, Rohert Semple, sem vakti hana til trúar með kenningu sinni og náði ástum hennar um leið. Þau krupu á kné og báðust lyrir þegar festar fóru fram; og fanst henni “stofan fyllast englum, sem skipuðu sér tveim megin við gullinn og sólbjartan lífsins veg er lá til konungsborgar; tókum við höndum saman, Roh- ert og eg, og þræddum þann stig síðan.” Hún sighli með manni sínum til Kína og misti hann þar eftir stutta samvist. Þar fæddist dóttir þeirra, Roberta. Hvarf þá frú Semple heimleiðis aftur og fór til móður sinn- ar, l'rú Kennedy, sem var í Hjálpræðishernum og komin suð- ur til Bandaríkja. Þær tóku nú að ferðast saman í erindum

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.