Sameiningin - 01.08.1933, Page 17
163
hrakninga. Sagan þótti því grunsöm. Ríkissóknarinn í Los
Angeles tók að sér að rannsaka málið; hann kærði frúna um
pretti, en sú sök féll niður. Blaðmenn urðu spurulir. En
frúin lét sig ekki. “Þetta er mín saga, og við það situr,”
sagði hún, þegar hart var gengið að með spurningarnar.—
En “musteris”-menn urðu grátfegnir, allur þorrinn, þegar
hún kom lífs heim aftur. Þeir veittu henni tiltrú og lotn-
ingu eins og áður. Og eftir það fyrtist yfir Ormistons vand-
ræðin.
Árið 1930 kom svo annar maður til sögunnar, söngvari
og söngvasmiður, David Hutton að nafni. Þeim manni gift-
ist hún eftir þriggja mánaða tilhugalíf. Vígslan fór fram í
leigðu loftfari um dögunarbil.
Fregnríti var þar auðvitað innanborðs, og nú komst nafn
frúarinnar enn á fyrstu síðu. Blöðin fluttu sæg af myndum.
Brúðhjónin ávörpuðu almenning úr hjónaherberginu, í gegn
um útvarpið. Þau föðmuðust og kystust á sjálfum hápalli
“musterisins.” Alt var í bezta gengi.—
En þá fær brúðguminn tvær stefnur fyrir trúlofunarsvik.
Önnur kæran komst fyrir rétt, og var Hutton dæmdur til að
horga þeirri heitmey sinni fimm þúsund dali í skaðabætur.
“Systur Aimée” varð heldur hverft við þessi tíðindi.
Hún lokaði sig inni í nokkurs konar kastala afskektum við
Elsinore vatn og varðist allra frétta. Steðjuðu nú óhöppin
að, hvert eftir annað. KJreppan mikla var komin til sögunn-
ar; tekjur minkuðu, en l'járhagur “musterisins” var ekki sem
beztur. Það varð hljóðbært, að Hutton hel'ði reynt að selja
“musterið” fyrir miljón dollara, og að stærðar-fjégjafir hefði
aldrei komið til skila. Söfnuðir “musteris” ílokksins í fimm
öðrum borgum sögðu sig úr sambandinu. Tuttugu menn,
sem höfðu safnað fé lil líknarstarfs fyrir “musteris” söfnuð-
inn, voru reknir úr vistinni. Hutton sjálfum var hótað burt-
rekstri.
Þá kemur “systir Aimée” úr útlegð sinni aftur, fer ineð
manni sínum í brúðarför, þó seint væri; tekur síðan við stjórn
aftur í “musterinu,” með sömu tilþrifum eins og áður. Segir
ekki meir af því, fyr en í vetur, að hún ferðaðist á ný til Gyð-
ingalands og lystistöðva í Suður-Evrópu, sér til hressingar.
En þegar hún var á heimleið, mætir henni sú l'regn, að Hutton
sé kominn í dómstólana með skilnaðarmál á hendur konu
sinni. Tók frúin því eins og við mátti biiast. Það mál er
ekki útkljáð enn, þegar þetta er ritað.