Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1927, Síða 16

Sameiningin - 01.03.1927, Síða 16
78 nálægur þeim, sem ganga um skuggadal dauSans. Veit sjúkum og sorgmæddum ljúfa næturhvíld. Tak börn þín öll i fo'ÖurfaÖm þinn í nótt og ávalt. “Lýkur dagur ljósri hrá, líÖur sól a8 vesturöldum. S'kuggar teygjast tínd'a á tár og myrkur sezt að völdum. Sendu styrk af ihimni hljótt, herra, lýstu mér i nótt. Hávært dagsins hark og stríö, hljóSnar senn meíS þungum kliöi. Jesú ásjón undurblíS, yfir hús mitt lýsi friÍSi. Kom svo draumvær höfgvi hljótt, herra, gist hjá mér í nótt.” (V. V. Snœvarr.) Villir vega, Ræða eftir De Witt Talmage• “Vér fórum alUr villir vega sem saivðir, stefndum hver sína< leið, en Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður á honum.”— Jes. 53,6. Enn einu sinni hringi eg hinni öldnu klukku náðarerindisins. En fyrri helmingur textans er ákæra, sakargift. Við höfum allir farið villir vega sem sauðir. Og einhver segir “Getur þú ekki slept þessu orði, allir; það er of stórt orð, breiðir sig út yfir alt of mikla, víðáttu.” Eg get hugsað mér aö einhver maður stæði upp, liti yfir hóp- inn hinum megin i kirkjunni og segði:— “Þarna er guðlastari; vel get eg skilið það, að hann hafi far- ið villur vegar. Og þarna á öðrum stað er fjárdráttarmaðud; hann hefir auðvitað fariö villur vegar. Og þarna er óhreinh maður; hann hefir farið villur vegar.” Textinn hefir okkur alla saman innilukta. Hann sveiflar sér utan um kirkjubekki, söngflokk og prédikunarstól, þegar hann segir: “Vér fórum allir villir vegar sem sauðir.” Eg get vel skilið hvern- ig á því stóð, að Lúter, þegar hann hafði fundið biblíuna, fórnaði upp höndum og hrópaði: “Ó, mín synd, mín synd!” eða hvernig á því stóð, að tollheimtumaðurinn, eins og Austurlandabúar eru

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.