Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1918, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.11.1918, Blaðsíða 3
^ametntngtn. Mánaðarrit til stuðnings kirhju og lcristindómi ísleadinga gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi fsl. í Vestrheimi XXXIII. árg. WINNIPEG, NÓVEMBER 1918 Nr. 9. Lofið Drottin. “Lofið Drottin, állar þjóðir, vegsamið hann, allir lýðir, því að miskunn lfians er voldug yfir oss og trúfesti Drottins varir að eilífu. Halelúja.” Um alla jörðina hljómi nú lofgjörð og þakklœti til lifanda Guðs, sem gefið hef.ir heiminum f rið. Krjúpi nú allar þjóðir að fótskör Drottins og hiðji, að aldrei framar komi upp stríð í heiminum. “Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss, heldur þínu nafni, dýrðina.” Já, Guð gefi mönnum náð og trú og viturt hjarta, svo þeir ekki upplirokist yfir sigrinum, heldur gefi Guði dýrð- inai, því það er hann, sem lætur stríðum linna til endi- marka jarðarinnar. Tlonum sé lof og dýrð fyrir sigurinn og friðinn, sem fenginn er. Nú lifna ótal vonir. Og allir, sem trúa á Guð, gleðj- ast í von um nýjan og hetri heim, eftir stríð þetta hið ógurlega. Allin sem elska lmgsjónir Jesú Krists, fá nýjan styrk til að treysta því, að réttlœti og sannleikur, lítillæti og kærleikur sigri enn í þessum gamla heimi Og nú verður tilhlökkun vor helg og heit og vonin um að sjá vini vora, syni og hræður aftur, heimkomna úr liörmungunum miklu. Hve vel skal þeim fagna og vand- lega leitast við að eyða þeim öflum synda og siðspillinga liér heima fyrir, sem grimmastir óvinir eru, svo engin móðir þurfi að kvíða, þegar liún aftur faðmar að sér hetj- una sina ungu.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.