Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1918, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.11.1918, Qupperneq 7
261 inu, — hann ætti að skýra þær fyrir fólki sínu tvisvar í viku. Ef til vill ætti þær að vera eina umræðuefni rétt nú, þær gnæfa svo tiátt yfir önnur mál á þessum tíma, því að framtíð heimsins er að miklu leyti undir því komin, hvað gert verður á friðarþinginu. Um daginn komst Lloyd George svo að orði: “Örlög heimsmenningarinnar í næstu fimm hundruð ár eru ef -til vill komin undir úrslitum friðarþingsins”. pað vofir yfir heiminum stór hætta einmitt nú, þegar friðurinn er í aðsigi. Hún er sú, að vér töpum af þessum hugsjónum, sem miljónir ungra manna hafa harist og dáið fyrir og ko:stað hafa heiminn fimm óumræðileg þrauta-ár. Heimurinn er á vegamótum. Allir kristnir menn og allar kirkjur ætti að Ijá ósvikið fylgi sitt þeim mönnum, sem eru að leitasit við að tryggja heiminum kristinn frið, — þetta nýja alþjóða-stjómarfar, sem forsetinn, Lloyd George, aðrir brezkir stjómvitringar, kirkjurnar og verkmannafélögin, hafa mælt fram með. Kirkjan og kristnir einstaklingar ætti að heimta af friðarþinginu þessi kristilegu úrslit; heimta það að Iheimurinn sé ekki látinn sökkva aftur ofan í það krist- indómslausa, sjálfseliskufuila heimsmáladýki, sem hann synti í á undan þessari styrjöld; þetta dýki, sem gerði ófriðinn mögulegan, og getur valdið öðrum ófriði síðar meir, nema við sé gert í tíma. Nauðsyn á áryekni í þessum efnum er enn brýnni fyrír þá sök, að vissir menn ætla sér auðsjáanlega að berjast með hnúum og 'hnefum gegn kristnum friði. Mótspyrnan er þeg- ar hafin undir leiðsögn Roosevelts ofursta. Hann trúir ekki á það, að hleypa kritsnum hugsjónum að í milliþjóðamálum; í nálega öllum ræðum, sem hann hefir flutt nýlega, hefir hann afneitað öllum þeim meginatriðum, sem leiðtogar bandaþjóðanna hafa skráð á merki sitt; Ihefir jafnvel farið svo langt að heirnta það, að hinar frægu fjórtán greinir Wil- sons forseta, fyrsta al-kristna stefnuskráin í alþjóðamálum, sem heimurinn hefir séð, væri með öllu dæmdar dauðar og ómerkar. petta getur ekki þýtt annað en það, að eftir al- gerðan sigur yfir pýzkalandi taka þjóðirnar til óspiltra mál- anna aftur með sömu þjóðræknisöfgarnar og áður, vopni sig hver í kapp við aðra — vor þjóð eins og hinar —og búi sig undir næsta stríð. fhaldsmönnum allra þjóða stendur stugg- ur alf of mikilli lýðstjóm. peir eru smeikir við alt, sem stefn- ir í áttina til samkomulags og samvinnu meðal þjóðanna. pað er skylda kristinna kennimanna, og kristins fólks yfir höfuð, allra, sem trúa því, að kristindómurinn eigi að ríkja yfir öllu mannlífinu — það er skylda þeirra að standa nú við

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.