Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1918, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.11.1918, Qupperneq 13
267 skifst hefir í ótal flokka. Hún hefir verið snortin. Hún er að sjá, að sundrungarmeinið ihennar þarf að læknast, og að rang-t er að láta ismámuni og auka-atriði aðskilja, og að synd- samlegt er að gera auka-atriði að stór-atriði, til þess með því að réttlæta sundrungar-andann hjá sér, og >ykjast svo með því vera að gera Guði >ægt verk. Raddir í þessa átt hafa heyrst frá vígvellinum. Her- prestar skrifa heim, að hermenn meti einkis kirkjuskifting- una. Trúarjátningarmunur .sé að þurkast út 'hjá þeim, og línur allar, sem aðskilji trúarlega. Og þegar þeir koma heim úr þessum blóðskóla vígvallarins, eftir að hafa bókstaf- lega iblandað blóði þar, þá verði þeir eindregið á móti allri kirkjuskifting og heimti að kirkjumar sameinist og striki yfir alt það, sem skilnaði Shafi valdið. Eitt slíkt bréf fékk nýlega erkibiskup ensku kirkjunnar hérna í Canada, og not- aði það fyrir texta að ræðu, sem hamn flutti á kirkjuþingi nýafstöðnu. Hvatti hann þar til samvinnu með öðrum kirkj- um mótmælenda. í þenna streng, um sameining og sam- vinnu, hefir verið tekið af mörgum heima fyrir. Margir hafa líka látið til sín heyra, sem borið hafa kirkjunni á brýn áhrifaleysi á lífið í iheiminum, og kent því um, að hver kirkj- an hugsi mest um sjálfa sig og hangi í sérkreddum sínum, sem ekkert geri til þó stungið sé undir stól; því að í öllum meginatriðum sé kirkjan sammála. Hreyfingin hefir líka náð til lútersku kirkjunnar hér í landi, eins og forseti kirkjufélagsins, síra Bjöm B. Jónsson, er þegar búinn að skýra frá. Og mun það hafa glatt oss alla. En hér er hætta á ferðum; sú, að maður láti hér sem oft- ar iskifta um tvö homin, — fari úr öfgum og sérgæðingsskap einstaklingsstefnunnar og sundrungarinnar, og yfir um í öfg- ar og fimibulfamib góðlætis-tilfinninga sameiningarinnar, er sameiningarinnar vegna strikar yfir allar trúarlegar merkja- línur, sem helgar hafa verið taldar af vorum trúuðu feðrum og þeir fómað sjálifum sér fyrir. Vitaskuld eigum vér ei að halda fast við neinar slíkar merkjalínur aðeins af virðingu fyrir feðrum vorum, hvað mikið, sem þeir hafa lagt í sölumar þeirra vegna. peir elsk- uðu sannleikann, og vegna hans fórnuðu þeir. Vér eigum að elska sannleikann og vegna hans að fórna oss, en ekki að fórna honum þæginda vorra vegna, eða til þess að þóknast mönnum. Sannleikurinn er Guðs, og hann hefir trúað oss fyrir honuim. Og Guði eigum vér að gera reikning á því, hvernig vér Ihöfum farið með hann. f hreyfingum þeim í kristninni, sem orðið haf a til sundr-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.