Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1918, Síða 16

Sameiningin - 01.11.1918, Síða 16
270 pegar annað eins er gert, bæði það að fólkið heimtar að úr sé felt ýmislegt, sem ekki á að vera nauðsynlegt, og prest- ar svo gera það, þá kemur -það til af vanþekking og skorti á skilning á trúarlegum sannindum. pess vegna er ]?að svo á- ríðandi, að presturinn þekki þau sem ibezt og skilji, ekki að- eins fyrir lestur isinn, heldur líka fyrir lífsreynslu sína. pá verður ei um undanhald og uppgjöf að ræða af hálfu hans. Nú imætti segja, að nóg væri að þekkja og skilja heilaga ritningu sem bezt, því að orð ihennar væri það, sem prédika ætti. Engar trúarsetningar — dogmur — þyrfti eða trú- fræði. pað alt sé aðeins til þess að sundra. En alt, sem að- skilur, þurfi að forðast. En ihvað eru trúarsetningar eða dogmur? — pegar eg nefni dogmur, þá er sem eg sjái suma, er þeir tala um dog- mur. peir verða svo ihnakkakertir og brúnaspertir, og með svo mikla bringufylli, að þeir minna ósjálfrátt á páfugl eða kalkúna — turkey. peim finst þeir vera svo langt hafnir upp yfir islíkt. — En hvað eru eiginlega dogmur? Kenningar kirkjunnar, þær, sem hún hefir fundið í Guðs orði. Mætti líka segja: Kenningar Guðs orðs, eins og kirkjan hefir tekið við þeim. pær eru blómknapparnir, sem Guðs orð hefir skotið og kirkjan hefir tínt. pær eiga þar rót sína. par er jarðvegur þeirra. par eru þær sprotnar. En ihvað er þá trúfræðin, — Tilraun mannsandans kristna til þess að skilja og gera sér sem bezt grein fyrir þvi, sem kirkjan á í trú isinni. Að sjá og gera sér grein fyrir sambandinu milli ihinna ýmsu atriða trúarsannindanna og samhengi þeirra. Kristinn maður er trúaður imaður, en hann er líka hugs- andi maður. En það er ekki fyrir hugsun sína, að hann er kristinn maður, heldur fyrir trú sína. Andleg lífsþörf hans, vakin af anda Drottins, gerði það, að hann greip í trú náð Guðs í Jesú Kristi og lífið í honum, sem Guð bauð honum, eins og hungraður maður grípur, vegna hungurs síns, matinn, sem honum er boðinn, en ekki vegna hugsunar sinn- ar um samsetning fæðunnar og skilnings á næringarhlutföll- uim efna ihennar. En af því kristinn maður hefir ekki af- neitað hugsun sinni, eða lagt hana eins og upp á hyllu, en þarf að hafa 'hana með sér í trú sinni, þá hugsar ihann um það, sem hann í trú sinni hefir eignast, og teitast við að gera sér sem bezt grein -fyrir því. Maður með hungrið í sál sinni eft- ir brauði lífsins, sem Jesús Kristur veitir,—og í allra sálum situr það hungur, þótt þær viti ekki af, — en sem vill ekki þiggja það brauð, af því hann vill ekki kannast við, að hann

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.