Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1918, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.11.1918, Blaðsíða 20
274 mæti guiisins, ef það lægi eins og sorp fyrir fótum manna allstaðar? Eins er um alt sem indælt er og dýrmætt, Drott- irm sparar iþað við osis, af eintómri mildi, til þess að vér lær- um þeim mun betur að njóta gjafanna. Skoðum þetta vel. pað er betra að finna til þorsta á hverj um degi og geta svo fundið ihvað svalavatnið er indælt og herssandi, iheldur en að finna aldrei til þarfarinnar og hafa svo aldrei yndi af gjöfinni. Betra að geta teigað í sig milt og ferskt vorloftið, geta glatt sig á vorgróðrinum að eíns einu sinni á ári, og það örstuttan tíma, að geta svo notið vorsins árið um kring, ýmist í endurminning eða tilhlökk- un,heldur en að hafa þá árstíð altaf hjá sér, og vita svo aldrei, hversu óumræðileg blessun er fólgin í hverri vorkomu. Seg- ir þú um einihverja gjöf skaparans: “Eg naut hennar ekki nógu lengi,” þá er þetta svar lífsins: “pú áttir að njóta hennar þeim mun betur, og ekki aðeins á meðan hún var hjá þér, heldur líka fyrir og eftirá”. Söknuður og eftirvænting eru tveir kennarar, sem maðurinn kernst ekki af án. peir kenna þér að njóta lífsins í hug og hjarta, fremur en með skilningarvitum, að fagna hverri blessun fyrirfram, áður en hún kemur, að hlúa sem bezt að áhrifum hennar í hjarta þínu, eftir að hún er farin, að verða margfeginn hverju því auignabliki, sem hún hinkrar við hjá þér. Er ekki sú tilhög- un betri, iheldur en ef oss væri íeyft að baða ihugsunarlauist í öllum miskunnsemdum Drottins, án þess að finna nokkuð til þeii*ra ? Haustfriðurimn minnir oss á annað um leið og hann f jar- ar út. pú átt ekki að leita eftir gæzku Guðs í blíðum árstíð- um einum, eða í meðlæti lífsins. Kærleikur skaparams er al- staðar nálægur, eins og skaparinn sjálfur. “Hvert vor og sumar vottar elsku þína og vetrar frost og byljir einnig sýna þitt gæzkugeð.” Indælt er vorið, fagurt er sumarið, blítt er haustið, en veturinn er líka dýrmætur; hann stælir, hressir, fjörgar; hann Ihreinsar sálina. Hann hefir sína tign, sína ströngu fegurð, til að gæða þér á. Manstu, hvernig þú fagnaðir frostinu, þegar þú varst bam; ihvemig æskuhitinn í sjálfum þér færðist í aukana, þegar hann mætti þessum glímukappa, vetrarkuldanum, hvernig sú glímu-hugsun færði nýtt líf í hverja taug? Manstu, hvað það var gaman að leika sér á svellunum og snjósköflunum, að skjótast út í sjálft hríðar-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.