Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1918, Blaðsíða 25

Sameiningin - 01.11.1918, Blaðsíða 25
279 J>iS?” hreytti hann úr sér meö öllum þeim illhryssingi, sem hann átti til. “Hvað viljum viö?” endurtók járnsmiöurinn. “Já, hvaö skyldum við vilja? Viö viljum aö þiö hraðið ykkur norður og niður allir saman, prússnesku blóðhundarnir, já, ofan i heitasta afkymann!” Hann færhi sig nær Keltner og barði hamrinum ofan í vinstri lófann á sér annað veifið, til áherzlu. “En svo er nú víst þetta til heldur mikiils mælst, svona í bráðina. Jæja, hvað viljum við þá til bráða- birgða ? Eg skal segja þér það, Prússi. Við erum auösveipnir, vilj- um iþað eitt, sem þiS viljið. Óskmm, að þið fáið allan ykkar vilja meö rentum og renturentum! Þiö vilduð stríð, þið vilduð róstur og blóð. Hana 'þá, við viljum það líka; viö viljurn að þiö fáið fylli ykkar af þeim krásum, að þeim verði þjappað ofan í ykkur þangað til þið kafnið af offylli; að blóöiö flæði, þangað til ykkur er blætt út; að ránin og ofbeldisverkin haldi áfram, þangað til húði-nni er flett af sjálfum ykkur. Þið vilduð skelfa menn með ógnum og grimd; gott og vel; magnist þær vofur, þangað til þið bliknið sjálfir af ótta og veinið eftir vægð! — Hvað viljum við? Sapristi! Þetta viljum við, þetta og miklu meira, ykkur til handa.” Hann þagnaði augnablik og reyndi að stilia sig. “En fyrir sjálfa okkur, þá viljum við einhv’ern snefil af mannréttindum; okkur geðjast ekki að réttvísinni ykkar; við viljum ekki eiga von á því á hverju augnabliki, að vera brytjaðir nið- u-r eins og hráviði, rannsóknariauist, fyrir engar -sakir. Við viljurn að hver maöur sé óhultur í þessu þorpi, þangað til einhver sök er sönnuð á hann. Og ef þ-að fæst ekki, þá varið ykkur! Viö erum ekki allir dauðir enn, og við deyjum ekki af tómri hræðslu. Þið getið tekið okkur af lífi, en þið getið ekki neytt okkur til að láta líftóruna gefins, þó við séum vopnlausir. Það verður ykkur dýr auðsveipni, sem þið hræðið i okkur með tómri grimd. Viö getum —” Lengra komst hann ekki, því tv!eir prússneskir hermenn gripu hann, og annar þeirra tók fyrir kværkar honum. Járnsmiðnum hafði aukist reiðin við hvert orð. Hann hafði fært sig nær og nær ofurstanum; það var komin hótun í hamarsveiflurnar og hópurinn var farinn að ókyrrast, þegar Keltner, sem fyrst hafði oröið sem þrumulostinn yfir þessari dirfsku, gaf mönnum sínum visbending og lét umkringja allan hópinn prússneskum byssustingjum áður en nokkurn varöi. Nú voru það bæjarmenn, sem stóöu höggdofa. Þáð sló í dauða- þögn i safnum. Keltner rak upp kuldahlátur. “Svo þið komuð til að færa okkur heillaóskir út af sigurvinningunum. Fallega hugsað. Nú s-kal eg sýna ykkur, aö við Þjóðverjar kuniium að rneta slikar heim- sóknir. Komið með fanga númer eitt!” Tveir hermenn fóru út. Þögnin varð geigvænleg. Eitthvað ilt var á ferðuni, en bæjarmenn v'issu ekki hvað það var. Að vörmu spori komu hermennirnir aftur með prestinn á milli sín. Babraut var lítið- eitt fölari, en hann átti að sér; djúp alvara skein úr andlitinu, eins og hann hefði stöðugt veriö á bæn síðan hann va-r settur í hald. Hann hélt katólskri bænabók —- breviarium. Herm-ennirnir staðnæmdust

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.