Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 4
196
flutti dr. theol. H. G. Stub, forseti Norsku kirkjunnar i Ame-
ríku, er til þings kom laugardaginn 24. júni, meb bróSurkveðju
frá Norðmönnum. Var koma þess mæta manns eitthvert
mesta gleðiefni þingsins. Mánudaginn 26. júní var skemti-
samkoma haldin aö Hallson. Var hún haldin i skógarrjóðri
úti, enda 'hefSi ekkert hús rúmaS þann mannfjölda, sem þar var
saman kominn úr allri sveitinni, frá Gardar til Pembina. StýrSi
séra Kristinn K. Olafson á meistaralegan hátt fjörugum ræS-
um lengi dags, eSa þar til náttúran fór aS gráta og lét rigna
skarpri skúr, svo ekki þyrfti aS kvarta um aS ræSurnar væru
“þurrar”. ViS þaS lauk ræSuhöldum, en byrjaSi þaS, sem ekki
var lakara, kaffidrykkja og snæSingur góSur hjá kvenfélagi
þess bygSarlags, inni i samkomuhúsi þorpsins. Um kvöldiS
var söngsamkoma haldin aS Mountain og voru þar margir.
Þó hér hafi veriS fariS mörgum orSum um skemtanir, má
ekki ætla, aS ekki hafi annaS gert veriS en skemta sér.
Fjórtán þingfundir voru haldnir til aS ræSa um starfsmál
kirkjufélagsins og ráSstafa þeim. Auk presta mættu á fund-
unum 50 kjörnir fulltrúar safnaSanna. Tveir af prestum
kirkjufélagsins gátu ekki komiS til þings, séra Adam Þorgríms-
son, sökum heimilis-ástæSna, og séra H'jörtur Leó, sem teptur
vail viS próf í skóla þeim, er hann stýrir; sagSi hann sig bréflega
frá prestskap á þingi.nu. Séra Adam hafSi undirbúiS fyrir-
lestur til aS flytja á þinginu samkvæmt ráSstöfun forseta, og
hefir hann góSfúslega boSiS Sameiningunni erindiS og verSur
þaS birt í næsta blaSi. .Tveir utanfélagsprestar sátu þingiS
meS fullu málfrelsi: séra Páll SigurSsson og séra FriSrik
FriSriksson.
Til meSferSar tók þingiS 14 starfsmál, sem nú segir:
Útgá'fumál, Fjármál, HeimatrúboS, Prestaskortur, HeiSingja-
trúboS, Jóns Bjarnasonar skóli, Betel, Sunnudagsskólamál,
Ungmennafélög, Trúmálafundir,, Samkomulagsmál, Samband
viS lútersk kirkjufélög, National Lutheran Council, Brezka og
erlenda biblíufélagiS. GjörSabók þingsins flytur na'kvæma
skýrslu um meSferS og afgreiSslu málanna og verSur því hér
eigi sagt frá nema fáu einu.
Óhætt er aS segja, aS þaS, sem á dagskrá var nefnt Sam-
komulagsmál, hafi í þetta sinn verið “stóra máliS”, og þar eð
þaS vekur mesta eftirtekt útifrá, þái skal hér skýrt frá þvi
nokkuS greinilega.
Sem kunnugt er, var á kirkjuþingi í fyrra kosin nefnd, er
á árinu skyldi vera búin til samtals viS menn úr söfnuSum þeim