Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1922, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.07.1922, Blaðsíða 9
201 National Lutheran, Council.—Safnast hafði á árinu um 1,400 doll. til líknarstarfs í Noröurálfu og afhent Nat. Luth. Council. Forseti kosinn málsvari kirkjufélagsins í Banda- laginu Biblíufclagið.—Less minst, 'hversu stór þakkarskuld vor er viö Biblíufélagiö brezka og söfnuöir vorir beðnir að styrkja þaö með fjártillagi. Samband viS önnur kirkjufélög.—Hreyft í ársskýrslu for- seta. Mikið rætt á þingi. Falið Framkvæmdarnefnd til und- irbúnings undir næsta þing. Starfsmál kirkjufélagsins verða síðar rædd hér í blaðinu við og við, en rúmið leyfir ekki meira að sinni. Vér viljum al- varlega ráða fólki öllu í söfnuðunum að kynna sér vel Gjörða- tók þingsins, sem bráðlega verður prentuð. Á safnaðaskrá kirkjufélagsins eru nú 57 söfnuðir. Fólks- fjöldi safnaðanna samtals 7,557. Skuldlausar kirkjueignir eru 152,466 doll. Sunnudagsskólar eru taldir hjá 33 söfnuðum; kennarar 206; innritaðir nemendur 1,237. ‘Meðlimatala ung- mennafélaga 430. Allir embættismenn kirkjufélagsins voru endurkosnir. Næsta kirkjuþing fyrirhugað í Selkirk, ef þar verður hægt að byggja kirkju á árinu og hafa hana tilbúna til vígslu, — annars í Winnipeg. Þingsetningar-ræða forseta kemur í næsta blaði. Vestur að Kyrrahafi. Eftir séra Kristinn K. ölafson. V. Point Roberts, Vancouvcr og Victoria. Point Roberts er nes eða skagi, sem liggur út frá megin- landi Canada norövestur af Blaine. Er sjóleiðin um 16 mílur. Einungis bláoddurinn á þessum skaga tilheyrir Bandaríkjunum. Minnir mig, að bann sé á fjórðu mílu, þar sem hann er breið- astur, en frá norðri til suðurs er bletturinn tilheyrandi Banda- ríkjunum víst ekki nema tvær milur, þar sem hann mælist bezt. Samgöngur út á tangann eru aðallega frá Blaine. Fer mótor- bátur þaðan með póst þrisvar í viku, og flytur einnig fólk og

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.