Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 11

Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 11
203 minni, vegna þess, hversu fiskurinn hefir gengiS til þuröar, en búskapurinn aftur kominn á fastari fót. Búskapurinn á Point Roberts er mjög svipaSur eins og hjá íslendingum í nánd viö Blaine. Stærð jaröanna svipuS og það, sem aöallega er lögS rækt við, hiS sama. Plafa ýmsir þar falleg gripabú og þar er lika talsvert af berja- og aldinarækt. Auk þess hafa allir nokkuS af hænsnum og garörækt. Sem dæmi þess, hvernig afkoma manna er viS slíkan búskap, má benda á mann, er frá íslandi kom fyrir tuttugu árum eSa nálægt því. Keypti hann 20 ekrur af landi og reisti þar bú. Hefir hann nú komiö sér upp rúmgóSu íveruhúsi og dágóSum útibyggingum, rutt lándiS, keypt í viSbót 15 ekrur, framfleytt stórri fjölskyldu og mun þÓ vera aS minsta kosti skuldlaus. Auðvitað er þetta ráðdeildarsamur dugnaöarmaður, en það sýnir hvaS hægt er. Eru mörg blómleg íslenzk heimili á Pt. Roberts, og afkoma manna þar yfirleitt góð. AuðvitaS er bygðin orSin talsvert gömul, — um 30 ár, síöan þeir fyrstu settust þar aS—, en þaS er lí'ka mikiö búiS aS vinna þar og marga erfiðleika aS sigra. Það er góöur bygSarbragur á Pt. Roberts. íslendingunum og innlenda fólkinu semur vel, 0g meðal íslendinga er gott ná- gtenni. Félagsskapur er þar töluverður: Öflugt lestrarfélag á gott safn af íslenzkum bókum; því miður mun það einungis eða aðallega vera notaö af eldra fólkinu. Svo er kvenfélag og safnaöarfélagsskapurinn. SöfnuSurinn er nýbúinn að koma sér upp myndarlegri kirkju, og vígði eg hana eftir beiSni safn- aðarins og samkvæmt umboði frá forseta kirkjuféíagsibs, sunnudaginn þann 22. janúar. Hafði verið góS samvinna um þá kirkjubyggingu, Og átti innlenda fólkiS þar einnig góöan hlut að máli, en í viöurkenningarskyni! voru haldnar guSsþjónustur og samkomur um andleg mál í kirkjunni á ensku samhliða ís- lenzkum guðsþjónustum. HafSi svipað tíð'kast í tíð séra Sig- urSar Ölafssonar, þvi innlenda fólkiS nýtur engrar sérstakrar prestsþjónustu. Voru þær guösþjónustur sóttar sérstaklega vel, og duldist mér ekki, að unga fólkiS íslenzka naut sín þar betur, en á íslenzkum guSsþjónustum.. Flutti eg tíu guSsþjónustur á Pt. Roberts, og var aSsóknin góð. — Helzt hefir leitt þar til dreifingar í andlegum málum, andatrúarhreyfing, er myndast ihefir utan um íslenzkan miöil þar búsettan. Ekki veit eg, hvort þaS sannast á mér, að glögt sé gests augaS, en eg leit svo á, aS fremur mundi fjara en flóð í þeirri hreyfingu þar. — Svo leizt mér á, að gott mundi vera að vera prestur hjá fóikinu á Pt. Roberts. Eg kom þar á mörg heimili, og viðtökurnar voru

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.