Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 13
205 tvö, er liggja fram á lappir sínar og halda vörö yfir borginni. Eru þær fjallamyndir ótrúlega náttúrlegar. En þær hefðu líka sjálfsagt horfi'S, ef eg hefði viljaö sækja þær heim. í Vancouver eru allmargir íslendingar, þó mi'klu séu: þeir færri nú, aS sögn, en þeir voru fyrir nokkrum árum. Margir hafa flutt burt vegna atvinnuleysis og deyfSar í viSskiftalífinu, sem þar hefir gert vart viS sig ekki síSur en annarsstaSar. Þeir, sem eftir eru, eru dreyfSir mjög. SöfnuSurinn þar er lítill og heimilislaus. Voru guSsþjónusturnar fluttar í sænskri kirkju lúterskri. Var sp fjölmennari sótt af milli 60 og 70 manns. Hja nlörgum varS eg var viS löngun til þess, aS fs- lendingar gætu þar haldiS hópinn, og töldu flestir helzta ráSiS til þess, aS prestur gæti komiS þar viS og viS. Komi fastur prestur vestur á Kyrrahafsströnd aftur, mun honum verSa vel tékiS í Vancouver. MeSan eg dvaldi í Vaneouver, var eg til heimilis hjá Árna FriSriks'syni, kaupmanni. Þekti eg hann og fólk hans frá Winnipeg, og var dvölin hjá þeim hin ánægjulegasta. Átti eg von á, aS Árni væri farinn aS láta á sjá, þvi hann var orSinn heilsuveill mjög síSustu árin eystra. En þaS, sem fyrir mig bar, var sjötugur ungli.ngur, fjörmikill og þolinn. Eitt kvöld, meSari eg dvaldi hjá þeim, höfSu þau Mr. og Mrs. Frederick- son fjölda íslendinga í boSi hjá sér, 0g kyntist eg þar mörgu myndarlegu fólki. — Öldungurinn Hermann Jónasson var í Vancouver, og var mér mikil ánægja aS kynnast honum. Hann er enn ungur í anda. Eggert Jóhannsson, fyrrum ritstjóra Heimskringlu, heimsótti eg, og kyntist einnig syni hans, sem er lögmaSur þar í horginni. Eggert er gætinn og fróSur og góSur heim aS sækja. Sonur hans, lögmaSurinn, er stillilegur mynd- armaSur. GuSmundur Anderson og fólk hans, er áSur var í Winnipeg, er meS félagslyndustu fslendingum í Vancouver.— Ásgrímur Thorgrimsson, fasteignasali, gerSi sér mikla fyrir- höfn' aS sýna mér borgina og gjöra mér dvölina ánægjulega. Var hann boSinn aS flytja mig í bifreiS sinni, hvert á land sem eg vildi. Bjami Kolbeins, sonur séra Eyjólfs Kolbeins á Mel- staS, var mér einnig liSsinnandi i því aS fylgja mér og sýna mér borgina. Kann eg öllu þessu fólki og mörgum fleiri kærar þakkir fyrir góSa viSkynningu og góSar viStökur. Erá Vancouver fór eg í fyrra skiftiS, er eg 'kom þangaS, áleiSis til Seattle. Fór eg skipaleiSina og kom viS á leiSinni í Victoria, sem er höfuSstaSurinn í British Columbia. Ganga ágæt skip þar á milli. Victoria er fögur borg á suSurenda Van-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.