Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 17

Sameiningin - 01.07.1922, Qupperneq 17
209 þess, aS hann skilji í öllu tilganginn í fyrirætlunum herra síns. Ef svo er um jarSneska húsbændur og verkamenn, hvers má þá vænta af mannlegum skilningi þar sem GuS er annars vegar? Því er ekki önnur leiö þekkjanleg, en aS fara nákvæmlega eftir fyrirskipunum GuSs orös og færa sér kostgæfilega í nyt hin heilögu sakramenti. ÞaS verSur ekki komist aSra leiö. Og leiöin er glögg þeim, sem vilja fara hana. Því ber ekki aS neita, aS hún er erfiS mannlegum skilningi, en þvi lengra sem gengiö er, þess léttara veröur undan fæti og erfiöleikanna gæt- ir aö síöustu tiltölulega lítiö í samanburSi viö þann fögnuS, sem þaö hefir í för meö sér. “TakiS ok mitt á ySur og læriö af mér, því eg er hógvær og af hjarta lítillátur, og skuluS þér þá finna sálum ySar hvíld; því aS ok mitt er gott og byröi mín létt”, seg- ir frejsarinn fMatt. 11:29-30,). Líka stendur í fyrsta bréfi Jó- hannesar, 5:31: “Þetta er kxerleikur GuSs, aö vér höldum hans boSorö.” Gerum þá þetta, og setjum oss aö breyta nákvæm- lega eftir því, sem er fyrirskipaö ,og færum oss í nyt náöar- meöul GuSs. bótt vér ekki skiljum þau til fullnustu. ÞaS mun reynast happaleiSin. Og sú kemur tíS, aS þaö, sem vér nú sjáum í spegli og ráögátu, munum vér gjörþekkja. Sig. S. Christophersson. Kveðjuorð. Laust fyrir kirkjuþing siöasta sagöi eg lausu embætti því, sem eg hefi haft meö 'höndum síöastliöin 9 ár, stjórn Jóns Bjarnasonar skóla. Eg þoröi ekki, eins og ástatt hefir veriS meS heilsufar mitt, aS halda áfram viö þaS starf. Þessi úr- sögn 'hefir svo veriS samþykt af kirkjufélaginu. EftirmaSur minn, ráöinn í þetta embætti, er séra Hjörtur J. Leó. Hefir hann óefaS mest traust Vestur-lslendinga sem skólamaSur. Hann er alþektur sem frábæii hæfileikamaSur bæSi í lærdómi og kenslu. Hann er enn fremur sterkur krist- indómsmaöur og prýöisvel aö sér í íslenzku. Vona eg nú, aS fólk úr öllum bygöum afráSi aö senda honum nemendur og aö enginn, sem miSskóla-nemendur sendir til Winnipeg, finni á- stæSu til aö senda þá neitt annaS en í Jóns Bjarnasonar skóla. ÞaS traust, sem eg hefi notiS í skólastjórastöSunni, vona eg aS séra Hjörtur njóti,, en eg vona fastlega, aS hann njóti miklu meira trausts, og hnúturnar, sem eg hefi fengiS, vona eg aö honum verSi aldrei sendar.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.