Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1922, Page 27

Sameiningin - 01.07.1922, Page 27
219 kristindórnsins og er enn,; aS hæla þeirri vantrúarstefnu, er rySja s’kal veg, einmitt fyrir það, hvað hún sé að veröa vinsæl. 'Þaö eina, að fráfalls'hreyfingin sé vinsæl, á aS vera nóg sönn- un fyrir því, aö hún sé góö. Og vinsældirnar eiga svo sem ekki að vera mestar á hinum svo kölluðu lægri stööum, heldur á “allur hinn mentaöi heimur” a8 vera aö háma í sig þetta nýja andlega fóöur. Og fyrst aö “allur hinn mentaöi heimur” er að falla fram og tilbiöja líkneskiö, þá er ekki nema sjálfsagt aö vér, aumingja íslendingarnir, “fáir, fátækir og srnáir”, föllum fram líka og veitum því lotningu.. Þetta vinsældaskrum um allar tegundir vantrúar hefir vilt margt gott fólk og gert því ömetanlegt tjón. Hitt er þó litlu hetra, aö vinsældirnar eru oftast lognar. Andastefnurnar fáránlegu, sem verið er að reyna að “snuða” inn á oss íslendinga, eru oft ekki annað en afdankaðar andlegar flökkukindur, er hyggnir menn vilja ekki líta við framar. Svo þó að sumt af því æfagamla andlega skrani, sem nú er verið að pranga út í íslenzkan almenning sem nýrri og góðri vöru, sé ef til vill eitthvað vinsælt hjá oss, þá er það ekki svo hjá öðrum, sem meiri reynslu hafa og þekkja þetta dót ofurlítið betur. Árið 1863, þ. 19. Nóv., var vígður hermanna grafreitur einn mikill við Gettysburg í Pennsylvania. Þrælastríðið stóð þá enn yfir, 0g í grafreit þeim hvíldu jarðneskar leifar mesta fjölda hinna vöskustu sona þjóöarinnar, er látið höfðu líf sitt í stríð- inu. Mikill hátiðarblær og alvöru hvildi yfir öllu. Ræðumaður dagsins var hinn frábæri ræðugarpur þeirrar tíðar, Edvvard Everett. Hafði hann skipað ýmsar tignarstöður hjá þjóðinni, t. d. verið forseti Harvard háskólans, fjórum sinnum ríkis- stjóri í Massachusetts, þingmaður i öldungadeild kongressins, sendiherra Bandaríkjanna við hirð Breta'konungs, m. fl. Ræða Everetts stóð yfir í tvær klukkustundir og þótti hann hafa tal- að frábærlega snjalt. Abraham Lincoln flutti ofurlítinn tölu- stúf og var að því i fimim mínútur. Sumir kendu i brjósti um Lincoln fyrir ræðustúfinn, fanst hann hafa verið efnislítill og næsta lítilf jörlegur í samanburði við hið snjalla erindi Everetts, og eitt stórblað þeirrar tíðar fór niðrandi orðum um forsetann og fanst framkoma hans hafa verið hin aumasta. Nú er alt þetta orðið breytt fyrir löngu. Hin fagra ræða Everetts er fallin í djúp gleymskunnar fyrir löngu síðan, en ræða Lincolns við Gettysburg er ein af hinuim dýrustu perlum bókmenta á enskri tungu, um leið og hún er ógleymanlegur stórviðburður í sögu þjóðarinnar.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.