Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1922, Blaðsíða 8

Sameiningin - 01.11.1922, Blaðsíða 8
328 fyrir forystu Mrs. Besant hefir hún náö útbreiöslu á Englandi og flutst þaöan til íslands. Eru nú fræöi guöspekinga, eins og C. W. Leadbeater hefir frá þeim gengiö, lögö fyrir Islendinga í bókinni: Æöri Heimar. STÚDBNTAFÉLAGIÐ FIMTW ARA.—Minningarrit. 14. nóv. 1921 varö Stúdentafélagið í Reykjavík fimtugt að aldri. Var þá gefiö út Minningarrit, er samiö hefir hr. Indriði Einarsson. Þarf ekki að því aö spyrja, aö ritið sé skemtilegt; nafn höfundarins nægir sem trygging þess. “Stúdentar” eru á íslandi ekki nefndir aðrir en þeir, sem lokið hafa burtfararprófi ('stúdentaprófij viö Mentaskólann, eöa samskonar skóla erlendis. Svarar félagið því til þess, sem hér i Ameríku er nefnt: Alumni Association. Vor á meöal tíðkast að kalla alla námsmenn stúdenta, og stúdentafélög, félög skólafólksins meðan það er að læra. Ef fylgja ætti íslenzkri venju, ætti ekki að kalla Stúdentafélag annað en félag þeirra- er lokið hafa prófi við æðri skóla ('collegesL Minningarrit Stúdentafélagsins í Reykjavik er aö 'því leyti ágætt, að það gefur skýra mynd af lífi og starfi félagsins. Þar er sjálft líf félagsins ekki kæft í tómum tölum 0g skýrslum, sem enginn man stundinni lengur, eða hefir gaman af. Það er nauðsynlegt, að eiga nákvæmar skýrslur um hvað eina. En geyma á þær á hagstofum og í skjalasöfnum, fremur en í alþýð- legum minningarritum. Sumir vilja hafa minningarrit að sínu leyti eins og líkræðurnar gömlu, endalausar þulur um ættir, bú- staði, ártöþ atvinnu o. s. frv. í bókmentum er sá munur leirs og listar, að annað er dautt efni, en hitt lifandi andi. Að því leyti er rit það, er hér um ræöir, gott rit, aö í því er lifandi andi. Líklega má segja, að það sé alls ekki nákvæmt, og niður röðun efnis ekki sem vísindalegust. En við lesturinn fær mað- ur það, sem mestu varðar: lifandi mynd. Lesarinn er ekki í neinum vafa um þaö á eftir, hvernig þessir mentamenn hafi verið. Það fær lesarinn einnig að horfa á, hversu ýmist flæð- ir eða fjarar í félagslífi þeirra. Stundum er félagið nær dauða en lífi; fáir sem engir sækja fundi, og ekkert áhugamál liggur fyrir. Því ástandi lýsir höf. stundum með sjálfri fundabók félagsins. Hér koma tvö sýnishorn til gamans: “5. fundur var haldinn laugardagskvöldið 11. nóv. á venjulegum stað og tíma.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.