Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1916, Side 3

Sameiningin - 01.08.1916, Side 3
16; bragSi ekki veitir eftirtekt. Eftir þeim þræði fer hið nær því almáttuga rafmagn, sem nærri því allir menn nota, en enginn veit hvað er. Upp á rafþrunginn þráð þennan liggur festi, og er vagninn á að hreyfa, er með þar til gerðu áhaldi gripið um þráðinn, sem uppi yfir er, og vagn- inum er gefinn sá sterki kraftur, sem eftir þræðinum fer, og vagninn fer ferða smna og stdðvast ekki nema slept sé taki á þræðinum, sem uppi yfir er, og vagninn sé slitinn úr tengslum við aflið að ofan. Og þar hefi eg þá fyrir augum alsanna mynd af þvír sem hugur minn og h.jarta er að fást við. Á sama hátt er farið því afli, sem öllu afli er sterkast í heimi, hreyfiaflinu að ofan, afli hins guðlega almættis. pað afl er ekki síður ætlað oss mönnunum en rafaflið, og höndla má það ekki síður. En höndin, sem um aflið tekur og tileinkar sér það, er t r ú i n. Trúin er almættið guðlega höndlað og hag- nýtt. pess vegna er það sannnefnt sigurafl. Og þess vegna er krossinn, merki trúarinnar, það merki sem vér sigrum með. pað er að sjá sem margir menn álíti þetta afl óháð heiminum, eða utan við hann, og um það eigi að eins að tala, en að nota það til verklegra framkvæmda sé skáldskapur tómur. Og þó kennir það öll mannkynssagan, að flest það stóra, sem framkvæmt hefir verið á þessari jörð, hefir unnið verið með krafti trúarinnar. Jafnvel úti á torgum og á starfsviðum umsýslumannanna, sem mestir afkasta- menn hafa verið, heyrist sá vitnisburður, að trúin sé sig- uraflið mesta. Rúmum mánuði áður en hann andaðist var eg þar áheyrandi, er einhver mesti fjármálafrömuður Bandaríkjanna sagði það við nokkra menn, er komið höfðu til máls við hann á skrifstofu hans, að trúin, eða kristin- dómurinn, eins og hann komst að orði, væri meginstoð mannfélagsins og kenningar Krists einustu varnai'virki þjóðarinnar. Honum var það engin launung, að trúin h'afði verið siguraflið í lífi hans. Maður þessi var James J. Hill, járnbrauta-kóngurinn mikli, sem nú er ný-látinn. Ekki veit eg hvort við á að segja, að trúin hafi bygt járn- brautirnar hans. En eg hefi fyrir mér orð annars manns, er öllum mönnum er meiri og mestan sigur hefir unnið og mestu afkastað af öllum þeim, sem stigið hafa fæti á þessa jörð, að trúin f lyt j i f j ö 11. Og það fullyrti Kristur, að enda þótt trúin væri lítil eins og mustarðs-korn, þá mætti þó í krafti hennar skipa fjöllunum að flytja sig og þau yrðu að hlýða. Feginn vildi eg vera því vaxinn, að lýsa nokkuð ná- kvæmlega þessu dularfulla og dýrðlega afli, ef það mætti verða oss til þess að nota það meir.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.