Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1916, Síða 28

Sameiningin - 01.08.1916, Síða 28
188 aS taka öll blómin af því jafnóðum. Þú sagðst ætla aS gefa ömmu þinni eina rós, frænku þinni aðra, veika drengnum í næsta húsi aðra, —og eg man ekki hve mörgum þú sagSist ætla aS gefa rósir, svo þaS verSur líklega ekki mikiS af þeim á trénu þínu.” “Já, þú segir satt,” svaraSi Beta; “þaS eru svo margir, sem hafa gaman af því aS eignast rósir, svo aS eg fæ varla nóg handa öllum, sem mig langar til aS gefa.” “Rósirnar þínar verSa ekki nema einni manneskju til ánægju,” sagSi Anna, “en margir gleSjast af mínum. Eg hlakka svo til aö heyra, hvaS fólkiS segir, þegar þaS sér þessar fallegu rósir, því mamma segir, aS þær verSi ljómandi á lit og stórar og ilmandi.” “En hv'aö þaS er gaman,” sagði Beta, og hoppSi af kæti, “því eg held aö amma hafi aldrei eignast, stóra ljós-rauöa rós. HvaS skyldi hún segja, þegar eg kem meS hana?” Voriö leiS, og frjóangar komu á rós-runnana báSa. Stúlkurn- ar litlu vitjuðu um þá oft á dag, vökvuSu þá þegar ekki rigndi og létu ekkert illgresi hafa friS nálægt þeim. Og svo komu einn góS- an veSurdag á þá stórar og ilmandi rósir. “Á eg aS eiga þetta yndislega blóm?” sagSi amma, þegar Beta færði henni fyrstu rósina sína. “En hvaS þú varst góS, elskan mín litla, að gefa mér þaö. Eg hefi aldrei séS fallegri rós. Viltu nú gjöra svo vel að láta hana í vatnsglas, svo aS eg geti haft hana hérna hjá mér og horft á hana og fundið ilminn af henni?” Næstu rósina fékk frænka, og þótti heldur en ekki vænt um. Sú næsta fór til veika drengsins og flutti sumariS inn til hans. Og hv’ert sinn, sem ný rós kom, var einhver, sem Betu langaði til aS gleSja. Aldrei stóöu rósirnar lengi viö á trénu hennar. Einn dag í Ágústmánuöi kom Anna aS heimsækja vinstúlku sína. “Þaö eru þá heldur engin blóm á runnanum þínum,” sagöi hún viö Betu; “þaö er langt síðan nokkur blóm hafa komið á minn.” “Nei, er þaS satt?” sagði Beta. “Þaö hafa veriS blóm á mínum í alt sumar. ÞaS er ekki lengra síöan en í gær, að eg tók stóra rós af honum og færöi föSursystur minni.” “Hvernig skyldi geta staöiö á því?” sagSi Anna; “eg hefi þó reynt aö hiröa um hann eins vel og mér hefir verið unt. ViS skul- um spyrja kennarann okkar aS því.” Þær fóru til kennarans og lögöu þetta vandamál fyrir hann. Og hvaS heldur þú aS hann hafi sagt? Hann sagöi stúlkunum, að þaö þyrfti aö taka rósirnar af runnanum, ef hann ætti aö geta hald- iö áfram að bera blóm. “Ef Anna hefði fariö aö eins og Beta,” sagöi hann, “þá væru enn aö koma rósir á tréö hennar; og Beta fær rósir til aS gefa langt fram á haust. Þannig fer lika fyrir þeim, sem mest hugsa um að gleðja aSra; því meira sem þeir gjöra öör- um til geös, þess auðugri v'erSa þeir sjálfir af sannri lífsgleöi.” o-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.