Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1916, Page 5

Sameiningin - 01.08.1916, Page 5
165 að véfengja það. Sú skoðun, að “skoðun” og “trú” sé eitt og hið sama, er svo rótgróin í huga almennings, að það má virðast viðurhlutamikið, að leitast við að aðgreina það tvent. Og þó þarf að aðgreina 'það, því það er sitt hvað. Fyrir orðið t r ú mætti ef til vill setja orðið “traust” eða “tiltrú”, en fyrir trú í merkingunni s k o ð u n, “samþykt”. pað sem vér viljum slá varnagla fyrir er það, að t r ú i n sé s ko ð u ð sem skynsemis-atriði einvörðungu. pegar menn tala um trú, hvort heldur trúmenn eða vantrúarmenn, er það, því miður, oftast frá því sjónarmiði, hvort trúað (álitið) sé með skynseminni, að þessi eða önn- ur hlutræn kenninga-kerfi sé sönn. pað er einhver háska- legasta villan, sem komist hefir að hjá mönnum, sú ímynd- un, að til þess að maður geti notið hinna endurleysandi og helgandi áhrifa trúarinnar, þurfi skynsemin fyrst að vita, skilja og samþykkja margvíslega lærdóma og margbrotnar kenningar. pað verður ekki of-oft sagt, að maður getur trúað (samsint) öllum greinum allra trúarjátninga, getur verið sannfærður um sannveruleik alls þess, sem heilög ritning kennir, og samt verið trúlaus í þeirri merkingu, sem í nýja testamentinu er lögð í trú. “Djöflarnir trúa og skelf- ast,” stendur þar. Trú þeirra hefir ekkert siðferðilegt afl í sér, engan kraft til endurlausnar og helgunar. Hún skap- ar ótta, en ótti er mótsögn trúar eða trausts. Köld skyn- semis-skoðun (trú) áorkar engu, hefir engan kraft í sér, en trú í sannri merkingu ber með sér fúsleik til athafna, fúsleik til áhættu; hún girnist sælu sjálfsafneitunar og þjónustu; hún fyllir mann guðmóði til þess að berjast fyrir áhugamálum þjóðanna og fórna sjálfum sér fyrir góða menn. Mig minnir, að það sé haft eftir indverskum spek- ingi, að maðurinn sé það, sem hann setur traust sitt til. Maðurinn verður það og getur það, sem hann hefir trú á. Auðvitað er það, að allri sannri trú er skynsemin sam- verkandi. Fullvissan eða meðvitundin væri blind ástríða án þess reynt sé að gera sér grein fyrir því, sem fullvissan eða meðvitundin er um. Með öðrum orðum: trúin verður að íklæða sig hugsunum, og hugurinn verður sem bezt hann getur að gera sér grein fyrir andlagi trúarinnar, og mesta sæla mannssálarinnar hér í heimi er—og hún verður það sjálfsagt eins í eilífðinni—að flytja að sér þekkingu og skilning á því, sem trúin vísar á og í trúnni býr. Sannri trú er er einnig ávalt samfara sterk t i 1 f i n n- i n g. Trúin leggur tilfinningar hjartans undir sig, en jafnframt eru það tilfinningarnar, sem trúnni gefa byr undir vængi. Eins og fuglinn lyftir sér á vængjum sínum upp yfir torfærur, sem annars væru óyfirstíganlegar, eins er trúnni með tilfinningunni gefinn kraftur til að fram-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.