Sameiningin - 01.08.1916, Side 24
184
RADDIR FRÁ ALMENNINGI
Beild þessa annast séra G. Guttownsson.
“Rödd” frá manni í Saskatchewan.
'Þegar eg var unglingur heima á íslandi, he}'rSi eg stundum talað
um GySinginn gangandi. Eg vildi vita, hvernig á þeim manni stæSi
og hv’í hann væri nefndur svo; og var mér einhverju sinni sagt, aö
hann væri búinn aö lifa í heími þessum síðán á Krists dögum, og væri
á sífeldu flakki um öll heimsins lönd, og heföi jafnvel einu sinni
komiö til íslands. Eftir því, sem eg komst næst, trúðu sumir því, aö
hann ætti aö fara um öll lönd í heiminum og veröa á ferli þar til
Kristur kæmi aftur til jarðarinnar. Eg heyrði getið um, aö einn
nafngreindur íslendingur hefði átt að sjá hann í kirkju á Þýzkalandi
og heföi hann verið mjög einkennilegur, snjóhvítur á hár og skegg
og ekki vottur fyrir roöa í andliti hans. Og í hvert sinn, er hann
heyrði Jesú nafn, hefði hann hrokkiö viö, eins og hann yröi þá fyrir
einhverjum sérstökum og átakanlegum sársauka.
Eg, sem annar spurull og forvitinn unglingur, vildi fá að v'ita,
hví svo væri komið fyrir manni þessum, því mér var meðfædd afar-
sterk löngun til að vita helzt alla hluti á himni og jöröu, þótt lítið
yröi ágengt í því efni, sem vonlegt var. Það leit svo út, sem fólk
vissi ekki alment um hina sönnu ástæðu fyrir því, að þessum sérstaka
Gyðingi v’ar svona háttaö, þó það á hinn bóginn tryöi, að hann væri
á sífeldu reiki um heiminn; því að fyrst lengi vel gat enginn, sem eg
spurði um þetta, gefið mér úrlausn. Svo kyntist eg eitt sinn frá-
bærlega fjölfróðum alþýðumanni, og sagði hann mér, á hvern hátt
þetta hefði atvikast, aö Gyðingurinn gangandi væri alt af á ferli.
Þegar Jesús Kristur var leiddur út úr borginni Jerúsalem til aftöku-
staðarins, með krosstréö á herðum sér, þá hefði hann verið svo þreytt-
ur og örmagna, aö hann hefði hallað sér upp að húsdyrum einum í
borginni, meðfram leið þeirri er hann fór. Hafi þá húsráðandi, er
stóð í dyrunum, stjakað við krossberanum. Þá á frelsarinn að hafa
litið til hans og sagt við hann: “Þú skalt ganga, en eg skal hvílast.”
Svo hafi maður þessi fylgst með út þangað, sem krossfestingin fór
fram, en komið brátt heim í hús sitt eirðarlaus og friðlaus og lagt af
stað, og alt af verið á ferli síðan. Hv’ort saga þessi er bókstaflega
sönn, þótt henni hafi verið trúað, veit eg ekki, og það gerir lítið til.
Hitt er bókstaflega satt, að Gyðingar hafa tvístrast og hrakist um öll
heimsins lönd, og til íslands hafa þeir einnig komið. Og það getur
varla dulist nokkrum manni, að hrakningar þeir allir og hörmungar,
sem yfir Gyðingaþjóðina hafa dunið síðan á dögum Krists, sé ægileg-
ur en þó réttlátur refsidómur Drottins, og næsta undrunarvert er það,
að Gyðingar skuli þó enn í dag vera til sem sérstök þjóð—og ef það