Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1908, Blaðsíða 1

Sameiningin - 01.10.1908, Blaðsíða 1
ami'inmgtn. Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi Isleadinna gejiff út af hinu ev. lút. lcirkjufélagi fsl. í Vestrhehm RITSTJÓRI JÓN BJANNASON. XXIII. árg. WINNIPEG, OKTÓBER 1908. Nr. 8. Ætlazt er til, að höfð sé í öllum söfnuðum kirkjufé- lags vors fjársamskot heimatrúboðinu til stuðnings sam- fara minning hinnar lútersku reformazíónar um eða rétt eftir næstu mánaðamót. Almenningr safnaðanna gjöri svo vel að hafa þetta vel hugfast. Þótt all-mikið hafi þegar vor á meðal verið rœtt um „nýju guðfrœðina' ‘, þá hina efasjúku og vantrúuðu andastefnu samtíðar vorrar sem svo er nefnd, má þó telja víst, að sumu og jafnvel mörgu safnaðafólki ís- lenzku sé enn allsendis ókunnugt um það mál. Þeir, sem svo er ástatt fyrir, geta sennnilega haft freisting til að ímvnda sér, að deilan, sem nú stendr yfir út af því efni innan kirkjunnar, ekki að eins innan íslenzka kirkjufé- lagsins lúterska hér og kirkjunnar á Islandi, lieldr og innan kristinnar kirkju víðsvegar um lönd, sé ástœðu- laus og óþörf. Sumnm vorra manna mun það nú reynd- ar enn sem komið er hulið, að deila sú, sem hér er um að rœða, er uppi í nútíðarkristninni almennt; en því fremr geta þeir, sem svo eru ófróðir, leiðzt til þeirrar ímyndunar, að þessi kirkjulegi ófriðr meðal vor Islend- inga sé algjörlega ófyrirsynju, að eins til þess að eyða kröftum vorum frá öðru, sem nauðsynlegra sé, og því einnig óafsakanlegr, syndsamlegr. Þessum og þvílíkum ímyndunum lijá fólki því, sem í alvöru vill kristið vera, þarf að eyða, og því fremr verðr að varna því, að þær nái að útbreiðast. 1 því skyni verða þeir allir, sem standa uppi vor megin, eða réttara sagt sannleikans

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.