Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1908, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.10.1908, Blaðsíða 16
240 honum fiannst örkin myndi velta um koll. Þá upptendraðist reiSi guSs gegn Úsa, og drottinn sló hann á þeirn sama staS, sak- ir þessarrar syndar, og hann dó /þar hjá örk guSs. Svo vand- lega gætti guS þess, aS skipan sinni örkinni viSvíkjandi væri hlýtt. Refsidómr þessi kann mörgum aS þykja strangr. En ef mannlegt vit ætlar hér um gjörSir guSs aS dœma, þá skyldi þess minnzt i upphafi og aS lokum og ávallt, aS miskunnsemi guSs misþyrmir aldrei réttlæti hans; og iþótt kerúharnir beri elsku guSs á vængjum sínum, þá leyfist samt engum aS hæSa hiS eilífa orS drottins undir loki arka.rinnar. Á steintöflurnar hefir drottinn ritaS „þú skalt“, og hver, sem hefr sjálfan sig og vilja sinn og vísdóm sinn upp yfir lögmál drottins, skal vissulega deyja. Þess skyldi allir þeir menn minnast, sem nú á þessarri umbreytinga og nýmæla öld taka upp ör'k drottins til aS bera hana. Svo áibyrgSarmikiS sem þaS var aS bera hina eldri sáttmáls- örk, þá fylgir því þó enn meiri ábyrgS aS bera örk hins nýja sáttmála, svo miklu sem náSarsáttmáli drottins vors Jesú Krists er lögmálssáttmálanum œSri. Og sama reglan gildir um nýja sáttmálann sem hinn eldra: Örk hins nýjia. sáttmála skal ávallt borin eins og guS hefir fyrirskipaS. Hann hefir líka gjört hinni nýju sáttmálsörk sinni ása, sem hún skal borin á. Mannleg hönd skal aldrei mega snerta örkina sjálfa, aldrei snerta inni- hald hinnar drottinlegu opinberunar, aldrei taka fram fyrir hendr drottins. Ef til vill virSist stundum eins og hin guSlega opinberun ætli um koll, eins og Úsa fannst um örkina, og þá ætla menn aS grípa til hennar og stySja hana meS 'höndum sín- um. meS mannviti sínu, lærdómi og vísindum. Nei, þess þarf ekki. GuS varSveitir sitt eigiS. — Enda hefSi Úsa ekki þurft aS grípa til arkarinnar, hefSi rétt veriS meS hana fariS. Þeir áttu aS bera örkina, en ekki aka henni. En þeir höfSu sett hana á vagn og beitt akneytum fyrir, svo léttara væri fyrir þá aS komast áfram meS hana. Svona fara menn aS enn, og þaS meS örkina nýju. Þeim finnst þungt aS bera hana, þungt aS beygja axlir anda síns og skilnings og vilja undir ása arkarinnar og bera hana þolinmóSir. Menn vilja létta undir byrSina, jafnvel beita ýmsum akneytum fyrir örkina. Menn vilja aka trú sinni á margskonar hjólum, sem þeir smíSa úr skynsemi sinni og beita þar fyrir akneytum lærdóms og mannspeki. En þegar akneyti þau taka einhvern hliSarkippinn svo skyndilega, aS hnykkr kemr á vagninn, þá ætlar örk guSs hjá þeim óSar um koll aS keyra. Þá þrífr maSr óhreinum höndum sínum til arkar opinberunar-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.