Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1908, Síða 7

Sameiningin - 01.10.1908, Síða 7
231 ins“ á hinum síðara stað—, „og er það sœmdarauki vorri frónsku kristni að láta þessa um þá getið“ (!!). Fyrir réttum fjórum árum var í blaði þessu minnzt Ijóðabálks nokkurs eftir séra Yaldemar Briem, sem höf- undrinn hafði verið svo vænn að senda ritstjóra „Sam- einingarinnar* ‘ í liandriti til kynningar. Það voru Ljóð úr Jobsbók. Og um sama leyti birtum vér með leyfi höfundarins tvenn sýnishorn af því skáldskaparverki (í blöðunum frá Október og Nóvember 1904). Nú eru ljóð þessi komin út á prent, og hefir hr. bóksali Halldór S. Bardal hér í Winnipeg kostað útgáfuna, en í Reykjavík eru þau prentuð: 115 bls. í 12 blaða broti. Prentunar- frágangr hinn bezti. Þó höfum vér tekið eftir stöku stafvillum. Kverið í bandi kostar 50 ct. Jobsljóð séra Valdemars sóma sér prýðilega meðal hinna trúarlegu skáldskaparverka lians, sem áðr voru komin út á meðal almennings. Sökum hins norrœna bragarháttar, sem þar er svo mikið notaðr, hafa þau á sér meira af blæ þjóðernis vors en ef til vill nokkuð ann- að, er sami maðr hefir orkt út af heilagri ritning. Og þótt trúarandinn sé svo sem að sjálfsögðu allr annar — hinn heilagi andi gamla testamentis ritninganna—, minna þau að sumu leyti sterklega á Hávamál. Þeir allir af fólki voru, sem af eigin reynslu þekkja til sárra liugsana út af liinum margvíslegu ráðgátum mótlætisins, munu fegnir lesa ljóð þessi og liafa af þeim hugfró. Má þá líka vænta þess, að kristnir Islendingar fari hér eftir út af því að kynnast þessu nýja skáldskap- arverki að leggja meiri rœkt við hina dýrmætu bók gamla testamentisins, sem þar er út af orkt. Jobsbókar-ljóð ætti að fá mikla útbreiðslu í söfnuð- um vornm, og þau eru inndæl lítil jólagjöf. Skólamálið. Oft hafa skoðanir manna verið skiftar á skólamál- inu. Á kirkjuþingum hafa menn þrásinnis í því máli

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.