Sameiningin - 01.10.1908, Side 24
248
og slasa sig, festast í snörunni og verða teknir. — Minnistexti:
Heldr tem eg líkama minn og þjái hann, svo að eg, sem kenni
öðrum, verði ekki sjálfr rækr (i. Kor. 9, 27).
Á prestaskólann lúterska í Chicago, sem dr. Weidner veitir
forstöSu, gangia í vetr þessir þrír íslendingar af þeim, er voru
þar í fyrra: Hjörtr J. Leó, Guttormr Guttormsson og Sigurðr
S. Christopherson. Hr. G. G., sem í sumar hefir verið skóla-
kennari í norðrhluta Þingvallanýlendu, Sask., og á sunnudögum
prédikað hjá söfnuðinum íslenzka þar og Konkordía-söfnuði,
er þó ekki enn farinn suör til prestaskólans, en fer þangað
væntanlega í næsta mánuði eftir að núveranda kennslustarfi hans
er lokið. — Auk þessarra þriggja verða í vetr á prestaskólanum
su'ðr frá þeir Carl J. Ólson og Haraldr Sigmar. Hinn fyrr-
nefndi er útskrifaðr frá Gustavus Adolphus College i St. Peter,
Minn., síðastliðið vor, hinn siðarnefndi um sama leyti frá Wes-
ley College í Winnipeg. Ekki verðr það þó fyrr en eftir jól að
hr. H. S. getr farið suðr, með því hann verðr ekki fyrr laus frá
skóla þeim fað Eaxdalj, vestr í ísl.-byggðinni í Sa.sk. — Vatna-
byggðinni, sem svo er nefnd—, sem hann ihefir kennt í síðan í
vor. Hr. C. J. Ó., sem unnið hefir að missíónarstarfi hjá oss
næstliðin sumur, ætlaði helzt áðr en hann fór héðan suðr í haust
að dvelja á háskóknum í Philadelphia næsta vetr, en hætti við
það að svo stöddu, og tók þegar undir eins að eiga við guð-
frœðanám með tilliti til áskorunar kirkjuþingsins i Selkirk til
hans og hr. Sigmars og hinnar bráðu þarfar kirkjufélags vors á
fjölgandi kennimannaefnum.
Blínhorg Stefánsdóttir, ekkja Kristjáns Jónssonar frá Geit-
areyjum, andaðist í Winnipeg 20. September, 75 ára gömul.
Kristján heitinn maðr hennar lézt í fyrra 8. sama mánaðar, svo
að milli þeirra hjón.a varð rúmlega eitt ár. Hún líktist manni
sínum í því að vera frábærlega góðgjörðasöm, og með sönnu
mátti um hana segja, að hún mátti ekki aumt sjá. Og að því
er trúna snerti var hún hiklau.s i kristindóminum gamla og
sanna, sem henni hafði verið innrœttr á barnsaldri. Hún and-
aðist hjá Jónínu ekkju Árna sonar síns eins og Kristján maðr
hennar ári áðr. Og reyndist hún þeim einkar vel. Póstrsonr
þeirra Páll Johnson hlynnti og að þeim á kvöldi æfidags þeirra
eftir að heilsa þeirra var þrotin með hinni hlýjustu rœktarsemi.
20. September lézt einnig í Winnipeg Herdís Þorvaldsdóttir