Sameiningin - 01.10.1908, Qupperneq 25
24Q
87 ára aS aldri ffœdd 31. Maí 1821). Hún hafSi langa langa
tíö veriö ekkja. Nafn manns hennar, er á sínum tíma andaöist
á Íslandi, var Sveinn Jónsson. Dóttir hennar Gróa, ekkja ensks
manns, öldruö kona, á heima í Selkirk. Þar haföi og Herdís
heitin áör dvaliö. Fyrir fjórum árum gekk hún í Fyrsta lúterska
söfnuð til þess eins og hún sagöi þá að deyja þar — í söfnuð-
inum, sem henni og auðnaðist blessunarlega. Heimili hennar
á þessum síðustu árum var hjá þeim Þorsteini Peterson og Guð-
rúnu Sigurðardóttur konu hans, sem önnuöuist hana meö kær-
leiksríkri nærfœrni.
8. Ágúst síðasta andaðist á heimili Stefáns sonar síns í
Minneota, Minn., öldungrinn Jósef Jósefsson Hoff, 77 ára að
aldri, ættaðr frá Bakka á Langanesströnd, eftir langa og afar
erviða sjúkdómslegu, sem ;hann hafði boriö meö sérstakri still-
ingu. Jósef sál. var hugljúfi hvers manns, glaðlyndr og góö-
viljaðr. Sannkristinn var hann og sterktrúaðr, og er hans
minnzt af öllum með viröingu og miklum kærleika. Á honum
rœttust orö Símeons; „Nú lætr þú, drottinn! þjón þinn í friði
fara, þar eð eg hefi fengið að sjá ‘hjálpræði þitt.“ — B. B. J.
í Marshall, Minn., lézt 23. September Friðrik Matúsalem
(Árnason) Anderson. Hann var formaðr íslenzka safnaðarins í
Marshall og kirkjuþingsmaðr síðastliöið suma.r. Heilsubilaðr
hafði hann verið um nokkur ár, en dáuöa hans bar að hömdum
fyrr en búizt var við. Hann var að eins 55 ára gamiall. Kom
frá íslandi (m VopnafirðiJ fyrir 20 árum og haföi dvalið í
Marshall öll þau ár nema fyrsta vetrinn; þá var hann í Minne-
ota. Mr. Anderson var bókbindari og stundaði þá iðn í Mar-
shall. Hann lifa kona hans, Sigrborg Jósefsdóttir, og dœtr
tvær, María, gift Mr. Emil Aker verzlunarmanni, og Ingunn,
skólakennari. — Hinn litli söfnuðr vor í Marshall hefir beöið
tjón mesta við fráfall þessa góöa manns og dygga þjóns í víu-
garðinum. Mr. Anderson átti mikinn og góðan þátt í starfs-
málum safnaöanna hér syöra og bar kirkjulega velferö vora,
mjög fyrir brjósti, einkum hin siöari ár. Vér söknum bans sárt
og geymum minningu hans í hlýjum og þakklátum hjörtum.
B. B. J.
Féhirðir kirkjufélagsins, hr. Elis Thorwaldson, kvittar fyrir
þessum fjárupphæöum, sem honum hafa veriö afhentar;
aj til stuönings iheimatrúboði: Mrs. J. H. Frost $1, Brandon-
söfn. $5, St. Jóhannesar söfn $37, Konkordía-s. $16, Swan Riv-