Fréttablaðið - 25.05.2011, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 25.05.2011, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 25. maí 2011 Áhrif af eldgosi í Eyjafjallajökli í fyrra og Grímsvötnum nú á þessu vori knýja á um leit að nýrri þekkingu á sviði flugvélaiðnaðar, flugumferðarstjórnunar, jarðvís- inda, veðurfræði og heilbrigðisvís- inda. Á örfáum misserum höfum við orðið vitni að því hvernig skyndi- legar breytingar af völdum þjóð- félagshræringa, veðurfarsbreyt- inga eða náttúruhamfara skapa fyrirvaralaust brýna þörf fyrir nýja þekkingu á fjölmörgum svið- um. Við sjáum þetta eftir náttúru- hamfarir og kjarnorkuleka í Japan, fjármálakreppur víða um heim og samfélagsuppnám í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum sem á ekki síst rætur í matvælaverðhækkun- um sem tengja má veðurfarsbreyt- ingum. Þessi nýlegu dæmi eru góð áminning um hversu vandasamt er að spá fyrir um þarfir framtíðar í menntun og vísindum. Við verðum vitni að því að hag- kerfi heimsins tekur gífurlegum breytingum. Með undraverðum hraða er Kína orðið næststærsta hagkerfi í heimi og helsti lánar- drottinn þeirra sem mest máttu sín fyrir nokkrum áratugum. Ind- land, Brasilía og önnur lönd Asíu og Suður-Ameríku eru á hraðri siglingu. Efnahagsleg og pólitísk þungamiðja í heiminum er að fær- ast til austurs og suðurs. Þetta mun allt hafa gífurleg áhrif á valdajafnvægi, viðskipti, efnahag, menningu og stjórnmál. Einn helsti mælikvarði á getu þjóða til arðbærrar þekkingar- sköpunar er hlutfall ungs fólks með háskólamenntun í hverju landi. Fyrir 30 árum var þetta hlutfall hæst í Bandaríkjunum en nú eru þau í 9. sæti. Obama forseti hefur sett markmið um að Banda- ríkin nái aftur forystusæti fyrir árið 2020. Þetta þýðir að hlutfall ungs fólks með háskólamenntun þar í landi þarf að aukast úr 40% í 60%. Þetta er háleitt markmið en bandarísk stjórnvöld vinna eftir aðgerðaráætlun sem á að skila þessum árangri. Þetta er að hluta andsvar Banda- ríkjanna við hraðri sókn Austur- Asíulanda á sviði mennta og vís- inda. Þar hefur róðurinn verið verulega hertur í krafti hagvaxtar og langtímasýnar um gildi mennt- unar. Suður-Kórea hefur til að mynda á stuttum tíma þróað eitt best menntaða vinnuafl í heimin- um. Í Singapore, Indlandi og Kína hefur mikil áhersla verið lögð á fjárfestingu í menntun, vísindum og nýsköpun. Það er augljóst að bandarískir og evrópskir nemend- ur þurfa í vaxandi mæli að keppa við stúdenta frá þessum löndum, m.a. um pláss við virtustu háskóla og síðan um störf á alþjóðavett- vangi. Þar við bætist að fyrir- tæki í Austur-Asíu koma til leiks á alþjóðlegum samkeppnismarkaði með sífellt betur menntað fólk. Nágrannalönd okkar hafa mörg brugðist við breyttri heimsmynd og aukinni samkeppni með því að setja skýr markmið í mennta- og vísindamálum. Dönsk stjórnvöld undir forystu forsætisráðherr- anna Anders Fogh Rasmussen og Lars Lökke Rasmussen hafa sett metnaðarfulla stefnu og nýlega það markmið að Danir eigi háskóla meðal 10 bestu í heimi fyrir árið 2020. Þessu er fylgt eftir með rót- tækum skipulagsbreytingum og stórauknum fjárframlögum til háskóla. Annars staðar á Norður- löndum er einnig verið að auka framlag til háskólastarfsemi. Ekkert bendir til annars en að sama gildi hér á landi og ann- ars staðar, að styrkur og sam- keppnishæfni Íslands í framtíð- inni velti á getu til að skapa nýja þekkingu, að staða okkar í heim- inum velti á því af hvaða krafti við höfum byggt upp háskóla- menntun og vísindi. En hvernig stendur fámenn þjóð undir slíku? ■ Í fyrsta lagi með því að átta sig á mikilvægi þess að setja skýr markmið um árangur líkt og aðrar þjóðir hafa gert. Árangur sem nær til menntunar á öllum stigum, árangur á sviði bóknáms, tæknináms, verk- og iðnnáms og listnáms. ■ Í öðru lagi með ýtarlegri aðgerðaráætlun með tímasett- um og mælanlegum markmiðum. ■ Í þriðja lagi með því að skil- greina hvað sókn af þessu tagi kostar og fylgja áætlunum eftir með fjárveitingu. ■ Í fjórða lagi með skipulagi menntakerfis sem tekur fyrst og fremst mið af markmiðasetn- ingu. ■ Í fimmta lagi með því að meta árlega hvernig gengur að ná settum markmiðum og taka á af krafti þar sem upp á vantar. Það er gríðarlega mikilvægt að við Íslendingar skynjum þær miklu breytingar sem eru að verða í heiminum og bregðumst við í tæka tíð. Samfélagið hefur nýjar og auknar þarfir fyrir þekkingu á nýjum tímum. Við þurfum meiri breidd og dýpt og sveigjanleika í menntun og vís- indum til að búa í haginn fyrir það sem óviss framtíð býr okkur. Þarfir nýrra tíma Menntamál Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands Einn helsti mæli- kvarði á getu þjóða til arðbærrar þekk- ingarsköpunar er hlutfall ungs fólks með háskóla- menntun í hverju landi. ÚR ERLENDUM LEIÐURUM Krabbameinssjúklingar þurfa tryggingu Sjúklingar sem eru sennilega með krabbamein eru meðal þeirra hópa sem sérstaklega þurfa á bæði skjótri greiningu að halda og meðferð. Þannig er þessu háttað við sum norsk sjúkrahús. En allt of mörgum sjúklingum er vísað til sjúkrahúsa þar sem biðtíminn er algjörlega óviðunandi. www.aftenposten.no/meninger/leder Úr leiðara Aftenposten Evrópusambandið svíkur Öfugt við Grikkland var efnahagsstefnan á Spáni tiltölulega vel rekin fyrir fjármálakreppuna. Afgangur var á fjárlögum og landið skuldar enn minna en til dæmis Bretland. Spánn varð fyrst og fremst fórnarlamb bankakreppunnar og fasteignabólunnar. Í sveitarstjórnarkosningunum um helgina löðrunguðu kjósendur sósíalista Zapateros. Þeir sneru sér til íhaldsmanna í mótmæla- skyni og Zapatero hefur tilkynnt að hann muni ekki bjóða sig fram aftur. Sannleikurinn er hins vegar sá að spænskir stjórnmálamenn hafa í raun enga möguleika. Þeir geta ekki fellt gengið vegna evrunnar og þeir geta ekki dælt fé út í efnahagslífið vegna fjármálamarkaðanna. Lyfið gegn spænsku veikinni er ekki til í Madríd, heldur fyrst og fremst í Berlín og Brussel. Þar hafa aftur á móti hinir evrópsku leiðtogar fyrirskipað kolranga meðferð. www.politiken.dk/debat/ledere Úr leiðara Politiken

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.