Fréttablaðið - 25.05.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 25.05.2011, Blaðsíða 24
25. MAÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● heilsa og hreyfi ng Þetta var alveg stórkostlegt,“ segir Edda Heiðrún Backman um ferðina upp á Langjökul með Ice-ferðum. „Bíllinn er á tveim- ur hæðum og gler allan hringinn, þannig að maður situr eins og í fiskabúri og sér allt í kringum sig. Orð fá engan veginn lýst þess- ari upplifun. Og það skipti engum togum að um leið og við komum upp þá dró frá sólu og allur fjalla- hringurinn opnaðist. Þetta var eins og kraftaverk.“ Edda hafði aldrei áður komið upp á jökul, enda segist hún vera álíka hrædd við jökla og hákarla, en hún sjái sko alls ekki eftir því að hafa þegið boðið í ferðina. „Og að fá að bjóða öllum vinunum með mér var bara yndislegt. Ég hef nefnilega svona hring af vinum í kringum mig, sem heita Heið- rúnardropar, og ég fékk að taka þau öll og maka þeirra með og svo auðvitað börnin mín og systkini.“ Edda segir jöklarútuna opna nýjan heim fyrir fatlaða, þar sem öll aðstaða sé til fyrirmynd- ar. „Mér finnst að fólk eigi alveg endilega að nýta sér þennan möguleika. Þetta er bara frábær reynsla í alla staði.“ - fsb Ólýsanleg upplifun „Þetta var eins og kraftaverk,” segir Edda Heiðrún um sólskinið á Langjökli. Ný jöklarúta var tekin í notkun af Ice-ferðum um síðustu helgi og í jómfrúrferðina var Eddu Heiðrúnu Backman leikkonu og stuðningshópi hennar boðið. Enda er rútan sérútbúin með tilliti til aðgengis fyrir hreyfihamlaða. „Við vorum að láta smíða fyrir okkur nýjan trukk sem er sér- staklega útbúinn fyrir ferðir á snjó og jökli,“ segir Arngrímur Hermannsson, forstjóri Ice, um tildrög ferðarinnar á Langjökul. „Þetta er fjörutíu manna jöklarúta og þegar verið var að smíða hana ákváðum við að hafa aðgengi fyrir hjólastóla og smíðuðum lyftu aftan á bílinn. Um helgina vorum við að taka hana í notkun í fyrsta skipti. Ég hafði frétt af því að Edda Heiðrún Backman leikkona væri mikið hreyfilömuð og að í kring- um hana væri stuðningshóp- ur sem héldi utan um hana allan sólarhringinn í sjálfboðavinnu. Mér fannst þetta merkilegt fram- tak og ákvað að bjóða Eddu og hópnum hennar með okkur í dags- ferð upp á Langjökul. Eddu fannst þetta mjög spennandi, sérstak- lega að geta boðið hópnum í svona ævintýri, enda er hún dálítill grall- ari og hafði gaman af furðusvipn- um sem kom á stuðningsaðilana þegar hún bauð þeim í jöklaferð.“ Arngrímur segir ferðina hafa tekist vel í alla staði. „Við lögðum af stað frá Reykjavík klukkan níu um morguninn og vorum komin upp á topp á Langjökli klukkan hálf tvö. Þar uppi var hávetur en um leið og við tókum Eddu úr lyft- unni braust sólin fram og við sáum til allra átta. Þetta var mögnuð upplifun.“ Ice býður upp á ferðir á Lang- jökul á hverjum degi í allt sumar á jöklarútunni sem hlotið hefur nafn- ið Ice-explorer og er ýmist hægt að fara um borð í Reykjavík eða við jökulröndina og ferðast upp á topp jökulsins. Arngrímur segist þó áhyggjufullur vegna eldgossins, enda hafi eldgosið í fyrra komið illa niður á fyrirtækinu. „Það þarf að fara varlega í að segja í fjölmiðlum að hér séu náttúruhamfarir. Eins þarf að koma greinilega fram að þetta sé staðbundið og menn þurfa að vera snöggir að láta vita um leið og gosið er búið eða orðið mjög lítið og koma þeim skilaboðum á fram- færi að þetta sé skaðlaust. Við getum bjargað málunum með því að gera eins lítið úr þessu og hægt er.“ - fsb Bauð stuðningshóp Eddu í ævintýraferð Langjökull tók vel á móti hópnum eftir að Ice-explorer flutti hann á toppinn. Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG! Öllum þykir okkur mikilvægt að finna til öryggis í lífinu. Dynjandi hefur verið leiðandi á sviði öryggisvara síðan 1954. Dynjandi örugglega fyrir þig! RYKGRÍMUR SEM VERND A FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Rútan er sérútbúin með tilliti til aðgengis fyrir hreyfihamlaða.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.