Fréttablaðið - 25.05.2011, Síða 28
25. MAÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR8 ● fréttablaðið ● heilsa og hreyfi ng
● LANDSMÓT UMFÍ 50+ Búið er að opna fyrir skráningu á fyrsta
Landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri sem haldið verður á Hvammstanga
24. til 26. júní í sumar.
Keppnisgreinar á mótinu í sumar
eru fjölbreyttar, allt frá badminton,
blaki, boccia og briddsi til fjalla-
skokks, golfs, hestaíþrótta og línu-
dans.
Skráning og aðrar upplýsingar um
mótið eru á vefsíðunni www.lands-
motumfi50.is. Þátttökugjald er 6.000
krónur. Innifalið í verðinu er keppnis-
gjald, tjaldsvæði og afþreying meðan á
mótinu stendur.
● JÓGA Í BARÁTTU VIÐ
BRJÓSTAKRABBAMEIN
Jóga hefur jákvæð áhrif á
konur með brjóstakrabbamein.
Það hefur í för með sér minna
stress og meiri vellíðan. Kemur
þetta fram í nýrri rannsókn
sem gerð var í Háskóla Texas í
Bandaríkjunum.
Rannsóknin var gerð á konum
sem voru í geislameðferð við
brjóstakrabbameini. Konunum
var raðað handahófskennt í
hópa. Einn hópurinn var látinn
æfa jóga, annar gerði venjulegar
teygjuæfingar og sá þriðji gerði
engar æfingar. Eftir geislameð-
ferðina voru þær beðnar um að
svara spurningum um heilsu
sína. Konunum í jógahópnum
og þeim sem gerðu teygjuæf-
ingar leið betur heldur en þeim
sem gerðu engar æfingar. Þó
leið konunum sem stunduðu
jóga sýnu betur í heildina.
● LISTELSKIR KARLAR ERU HAMINGJU
SAMARI Karlmenn sem njóta þess að sækja tónleika,
listasöfn og leikhús eru líklegri til að vera lífsglaðari og
heilsuhraustari en þeir sem eru óvirkir í menningar-
lífinu. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Norges tekn-
isk-naturvitenskapelige universitet sem náði til fimm-
tíu þúsund Norðmanna. Niðurstöður rannsóknarinnar
sýndu að bæði karlar og konur sem taka virkan þátt í
íþróttum, kirkjustarfi og hvers kyns menningarviðburð-
um eru við betri heilsu og lukkulegri með lífið. Munur-
inn var mun meiri hjá körlum, sem eru níu prósentum
líklegri en aðrir til að vera hraustari, fjórtán prósentum
líklegri til að vera hamingjusamari og tólf prósentum
ólíklegri til að verða þunglyndi að bráð.
● ÁHERSLA Á HEIL
BRIGÐA LÍFSHÆTTI
Sumarstarf Ferðafélags barnanna
er að hefjast. Í starfi félagsins er
áhersla lögð á að bjóða upp á
ferðir og uppákomur fyrir börn
sem víkka sjóndeildarhring
þeirra og upplýsa þau um heil-
brigða lífshætti úti í náttúrunni.
Ferðunum er skipt í þrjá
aldursflokka, upp að tólf ára
aldri. Börn á leikskólaaldri fara
meðal annars í fjöruferðir,
hestaferðir og stuttar fjallgöngur.
Í næsta aldursflokki, frá sex til níu
ára, er farið í göngur og ratleiki
og rifjaðir verða upp íslenskir
leikir. Börn á aldrinum tíu til tólf
ára fara meðal annars í skipu-
lagðar dagsferðir þar sem farið
verður í fjallgöngur.
Nánari upplýsingar um
starfsemi Ferðafélags barnanna
og skráningu er að finna á
vefsíðunni www.allirut.is. - mmf
FjögurSEX
Kl. 16:00
Svali
Kl. 9:00
Heiðar
Kl. 13:00
Villta Vestrið
Kl. 7:00
AÐ EILÍFU
FM
FjögurSEX Brynjar Már og Margrét Björns gera heimferðina skemmtilegri
Villta Vestrið Nýr og ferskur morgunþáttur frá mönnunum
á bak við lögin Sjomleh, Keyrum þetta í gang,