Fréttablaðið - 26.07.2011, Síða 2
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
Tryggvi Már, bjóðið þið ekki
bara upp á svið í staðinn fyrir
lunda?
Nei, en við bjóðum hins vegar upp
á létta lund upp á sviði.
Nýtt og varanlegt svið verður tekið til
notkunar á næstu Þjóðhátíð. Tryggvi Már
Sæmundsson er framkvæmdastjóri ÍBV.
FÓLK Fimmtán manna hópur nem-
enda við Háskóla Íslands tók um
fyrri helgi þátt í alþjóðlegu hönn-
unarkeppninni Formula Student
sem fram fór á Silverstone-kapp-
akstursbrautinni í Bretlandi. Hóp-
urinn hefur síðasta árið hannað
rafknúinn kappakstursbíl.
„Þetta gekk framar vonum. Við
fengum verðlaun sem er ekkert
annað en geðveikt fyrir lið sem
er að taka þátt í fyrsta skipti. Öll
reynslan sem við fengum þarna
úti og það að sjá hvernig keppnin
gengur fyrir sig, það var bara frá-
bært,“ segir Arnar Freyr Lárusson
sem leitt hefur vinnu hópsins.
Alls tóku lið frá 110 skólum þátt í
keppninni að þessu sinni en keppn-
in er haldin árlega. „Liðin koma
alls staðar að úr heiminum og sum
þeirra eyða tugum milljóna króna
á ári í þróun bílsins auk þess að
hafa starfsmenn í fullri vinnu hjá
skólunum sínum við þetta,“ segir
Arnar og bætir við: „Þegar fólk-
ið úti heyrði hvað við erum í raun
með takmörkuð aðföng trúði það
varla að okkur hefði tekist að búa
til fullmótaðan bíl.“
Íslenska liðið tók þátt í sjálf-
bærniflokki sem er flokkur fyrir
bíla sem ganga fyrir óhefðbundn-
um orkugjöfum. Þótt markmiðið
sé að hanna kappakstursbíl segir
Arnar keppnina ekki vera kapp-
akstur því mestur tími fari í að
kynna hönnunina, viðskiptalíkan-
ið og hugmyndafræði hópsins.
„Liðin setja sig í spor fyrirtækis
sem er að hanna bíl sem það vill
svo kynna fyrir framleiðslufyrir-
tæki eða fjárfestum. Liðin þurfa
því að hanna og búa til bílinn út
frá viðskiptalegum forsendum
og greina hvers konar viðskipta-
vini þau eru með í huga. En margt
annað kemur reyndar til svo sem
umhverfissjónarmið,“ segir Arnar.
Fjöldi stórfyrirtækja fylgist
með keppninni og eitt þeirra er
Airbus sem veitir árlega einu liði,
sem þykir vera samheldið og hafa
lagt mikið á sig, peningaverðlaun.
Í þetta skiptið hlaut íslenska liðið
þau verðlaun.
„Þeir voru eiginlega hrifnastir
af því hvað við vorum sveigjan-
leg. Við erum með mjög lítið
lið, einungis fimmtán manns,
og með mjög takmörkuð fjár-
ráð. Við höfum því þurft að haga
okkur mjög íslenskt, það er, allir
hjá okkur hafa í raun stokkið í öll
verkefni,“ segir Arnar sem bætir
því svo við að fyrirtæki á borð við
Marel, Össur, Verkís, Icelandair
Cargo, Héðin og Álheima hafi veitt
liðinu mikinn stuðning.
Arnar segir liðið vera reynsl-
unni ríkara og það hyggist taka
þátt aftur að ári. Að þessu inni tók
liðið ekki þátt í kappaksturshlutan-
um en Arnar segir markmiðið vera
að klára öll stig keppninnar að ári
en einungis broti bílanna í keppn-
inni tekst það. Þá stefnir liðið
einnig á að vera með umhverfis-
vænsta bíl keppninnar.
magnusl@frettbladid.is
Airbus verðlaunar ís-
lenska háskólanema
Hópur íslenskra háskólanema vakti mikla athygli í hönnunarkeppninni Form-
ula Student sem fram fór í Bretlandi á dögunum. Hópurinn hefur síðasta árið
hannað rafknúinn kappakstursbíl og hlaut verðlaun frá Airbus fyrir vinnu sína.
HLUTI ÍSLENSKA LIÐSINS Liðið stefnir að því að taka aftur þátt að ári og hefur sett sér
háleit markmið um árangur.
Dr Organic – hreinar náttúruvörur
Kælandi og græðandi, 98,9% hreint Aloe Vera gel
án skaðlegra aukaefna.
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum.
STJÓRNSÝSLA Fangelsismál verða til umræðu á ríkis-
stjórnarfundi í dag. Gögn fyrir útboð eru á lokastigi,
bæði hvað varðar byggingu og fjármögnun. Eftir er
hins vegar að taka ákvörðun um hvernig fjármögnun
verður háttað.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur talað
fyrir því að ríkisstjórnin fjármagni bygginguna, en
um það hefur ekki náðst samstaða í ríkisstjórn.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir
of mikið gert úr ágreiningi um málið. „Ég held að það
séu allir sammála um það í ríkisstjórn að við eðli-
legar aðstæður í ríkisbúskapnum – og ef ríkið væri
rekið með afgangi – væri heppilegast að ríkið stæði
sjálft fyrir framkvæmdinni. Veruleikinn er þessi og
þess vegna höfum við reynt að leita leiða til að koma
framkvæmdum og fjárfestingu af stað, án þess þó að
það geri glímuna við ríkisfjármálin erfiðari, akkúrat
þessi árin þegar hún er hvað hörðust.“
Steingrímur vísar til þess að til annarra aðila hafi
verið leitað við fjármögnun á nýjum Landspítala og
einnig hafi verið uppi hugmyndir um fjármögnun
vegaframkvæmda með sértekjum eða vegtollum.
Hann segir miður að ekki hafi verið ráðist í fram-
kvæmdina þegar betur áraði í ríkisbúskapnum, en nú
styttist í ákvörðun. „Við munum ekki velta þessu máli
lengi á undan okkur og höfum ekki gert. Tíminn fram
á vorið fór í að undirbúa allt ef til útboðs kemur.“ - kóp
Fjármálaráðherra segir hafa dregist úr hömlu að leysa fangelsisvandann:
Taka ákvörðun um fangelsi
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Segir styttast í ákvörðun um
hvernig fjármögnun nýs fangelsis verður háttað enda sé þörfin
brýn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NEW YORK, AP Þernan sem ásakað
hefur Dominique Strauss-Kahn,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, um
nauðgun kom um helgina fram
opinberlega og sagði fjölmiðlum
sögu sína. Það segist hún gera því
hún vilji sjá Strauss-Kahn fara í
fangelsi.
Ákvörðun þernunnar, sem heitir
Nafissatou Diallo, þykir áhættu-
söm, að sögn lögfræðinga. Viðtölin
við tímaritið Newsweek og ABC-
sjónvarpsstöðina veita henni tæki-
færi til að auka trúverðugleika sinn
en verði hún uppvís að misfærslum
munu verjendur Strauss-Kahn
eflaust nýta sér það óspart.
Diallo segist ekki hafa vitað hver
Strauss-Kahn var fyrir árásina.
Hann hafi ráðist að henni eins og
„brjálæðingur“ og neytt hana til
að veita sér munnmök þrátt fyrir
áköf mótmæli. Þá segist hún hafa
óttast um líf sitt þegar hún heyrði í
sjónvarpinu að Strauss-Kahn væri
líklegur til að verða næsti forseti
Frakklands.
Viðtölin við Diallo koma út nú
þegar málið gegn Strauss-Kahn er
í lausu lofti í kjölfar þess að efa-
semdir vöknuðu um trúverðugleika
hennar hjá ákæruvaldinu í New
York. Hún varð uppvís að rang-
færslum um fortíð sína auk þess
sem ósamræmis gætti í frásögn af
hegðun hennar eftir árásina. Í við-
talinu viður kenndi Diallo að hafa
sagt rangt frá fortíð sinni þegar
hún kom til Bandaríkjanna.
Lögmenn Strauss-Kahn kölluðu
viðtölin óviðeigandi fjölmiðla sirkus
sem settur væri á svið til að hafa
áhrif á almenningsálitið.
- mþl
NEWSWEEK Nafissatou Diallo segir
sögu sína í nýjasta tölublaði News-
week. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Stendur við ásakanir sínar á hendur Dominique Strauss-Kahn:
Þernan segir sögu sína opinberlega
NEYTENDUR Töluverður fjöldi fólks
hefur skilað Sölufélagi garð-
yrkjumanna grænum kössum í
kjölfar fréttar um að undanfarin
þrjú ár hefðu horfið 10 þúsund
kassar á ári. „Íslendingar eru
greinilega miklu meðvitaðri og
skilvirkari en við héldum,“ segir
Gunnlaugur Karlsson, fram-
kvæmdastjóri félagsins.
Hann segir jafnframt fjölda
ábendinga hafa borist um hvar
slíka kassa, sem grænmeti er
flutt í, sé að finna. „Við höfum
frétt að þetta sé hjá ýmsum fyrir-
tækjum. Auk þess kveðst fólk
hafa keypt þessa kassa á bænda-
markaði og meira að segja í Góða
hirðinum.“
Tap Sölufélags garðyrkju-
manna hefur verið 12 til 15 millj-
ónir á ári vegna affallanna. - ibs
Sölufélag garðyrkjumanna:
Grænu köss-
unum skilað
GRÆNMETISKASSI Fjöldi fólks hefur að
undanförnu skilað grænum plastkössum
til Sölufélags garðyrkjumanna.
Vilja betra fjarskiptasamband
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar skorar á
stjórnvöld að finna leiðir til að koma
á betra fjarskiptasambandi, einkum
net- og sjónvarpssambandi, í minni
byggðakjörnum Ísafjarðarbæjar. Þá
telur bæjarráð ljóst að einkafyrirtæki
muni ekki koma á nútímasambandi
án fjárhagslegrar aðkomu ríkisins.
VESTFIRÐIR
SLYS Fimmtán ára gamall dreng-
ur, sem slasaðist þegar hann lenti
með höndina í marningsvél í fisk-
verkuninni Godthåb í Nöf í Vest-
mannaeyjum í fyrradag, gekkst
undir aðgerð á Landspítalanum í
fyrradag. Að sögn læknis er líðan
drengsins eftir atvikum.
Drengurinn var fluttur með
sjúkraflugvél til Reykjavíkur.
Fulltrúar frá Vinnueftirlitinu
munu rannsaka málið. Þeir ætl-
uðu til Eyja í gær en komust ekki
með Herjólfi vegna þoku.
Vinnuslys í Vestmannaeyjum:
Líðan drengsins
eftir atvikum
DÝRALÍF Skotveiðifélag Íslands,
Skotvís, hvetur til þess að frek-
ari rannsóknum verði ýtt úr vör
um hvort mögulegt sé að flytja
hreindýr til Vestfjarða áður en
stjórnvöld og sveitarstjórnir taki
afstöðu til málsins.
Segir Skotvís í nýlegri tilkynn-
ingu að í umræðunni um þessi
mál bæri nokkuð á fordómum og
skorti á þekkingu á hreindýrum
og áhrifum þeirra á umhverfið.
Enn fremur segir að hreindýr lifi
góðu lífi nánast um allt norður-
hvel jarðar og sérfræðingar í
hreindýrum hafa lýst því yfir að
Vestfirðir séu spennandi kostur
fyrir hreindýr. Skotvís ætlar að
standa fyrir málþingi um þetta
mál á haustdögum. - jse
Skotveiðifélag Íslands:
Vilja þinga um
hreindýramálin
HREINDÝR Á BEIT Skotvís telur Vestfirði
spennandi kost fyrir hreindýr.
SPURNING DAGSINS