Fréttablaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 4
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR4 GENGIÐ 25.07.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 221,7692 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,12 115,66 187,38 188,30 165,36 166,28 22,183 22,313 21,284 21,410 18,147 18,253 1,4717 1,4803 184,46 185,56 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is TRYGGINGAR Um 9.500 manns fengu ofgreiddar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins árið 2010. Fólkið þarf að endurgreiða stofnuninni 1,2 milljarða króna til baka, að því er fram kemur á vef Tryggingastofnunar. Af þess- um 9.500 voru 3.000 með 100 þús- und eða meira í ofgreiddar bætur. Viðkomandi munu þurfa að greiða þessar upphæðir til baka. Um 31 þúsund manns eru með inneignir hjá Tryggingastofnun eftir að hafa fengið of lítið greitt á síðasta ári. Þar af eru 9 þúsund með meira en 100 þúsund krónur í inneign. - sv Tryggingastofnun ofgreiddi: Mörg þúsund þurfa að borga EFNAHAGSMÁL Ársverðbólgan mælist nú 5,0 prósent, og hefur aukist um 0,8 prósentustig frá því í júní þegar hún var 4,2 prósent. Hækkandi húsnæðisverð og hækkun á matvælaverði skýra hækkunina að mestu, en útsölur höfðu áhrif til lækkunar, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Síðustu þrjá mánuði mælist verðbólgan 1,6 prósent, sem jafn- gildir 6,3 prósenta verðbólgu á ári. Verðbólgumarkmið Seðla- bankans eru 2,5 prósent. - bj Húsnæði og matur hækka: Ársverðbólgan í fimm prósent BRUNI Mannlaust íbúðarhús, sem verið var að gera upp á Patreks- firði, gjöreyðilagðist í eldi í fyrri- nótt, en engan sakaði. Tilkynnt var um mikinn reyk frá húsinu laust fyrir klukkan fimm í fyrrinótt og logaði mikill eldur innandyra, þegar slökkvi- liðið kom á vettvang. Nálægt íbúðarhús var um tíma í hættu, en slökkviliðsmönnum tókst að verja það. Eldsupptök eru ókunn. Bruni á Patreksfirði: Mannlaust hús gjöreyðilagðist Barði mann með strákústi Ósætti ölvaðra manna leiddi til þess að annar sló hinn með strákústi eitt högg í höfuð og hönd aðfaranótt laugardags á Selfossi. Af högginu hlaust skurður á höfði sem þurfti að sauma og að auki brotnaði bein í framhandlegg. Sá brotni mun hafa verið búinn að taka í sína vörslu tölvur og annan búnað þess sem sló. LÖGREGLUFRÉTTIR VIÐSKIPTI Eftirspurn eftir nýjum bifreiðum frá Japan er meiri en framboð hér á landi. Töluvert er um að Íslendingar, sem pöntuðu nýjan Land Cruiser eða Lexus-í vor, þurfi að bíða eftir afhendingu fram á haust. Vegna jarðskjálftans og flóð- bylgjunnar sem reið yfir Japan í vor dróst framleiðsla Toyota saman um helming. Hún jókst þó á ný í júní og er samdráttur í sölu og framleiðslu um tíu prósentum minni sé miðað við sama tíma í fyrra, að því er fram kemur á fréttavef Associated Press. Páll Þorsteinsson, upplýsinga- fulltrúi Toyota á Íslandi, segir Íslendinga þó afar skilningsríka hvað þetta varðar. „Viðskiptavinir sýna þessu full- an skilning, þeir vita að það er ekkert við þessu að gera,“ segir Páll. „Svona er þetta þegar nátt- úran tekur sig til. Og það könn- umst við Íslendingar auðvitað afar vel við.“ Framleiðsla og sala hjá flestum japönskum bíla- framleiðendum, svo sem Honda, Suzuki og Nissan, dróst sömuleið- is saman um allt að 50 prósent í maí miðað við sama tíma í fyrra, en líkt og hjá Toyota er sala sem og framleiðsla að komast á réttan kjöl. Áætlanir eru hjá Toyota um að framleiða aukalega 350 þúsund bifreiðar frá október næstkom- andi og fram í mars 2012, til að bæta fyrir samdráttinn sem varð í framleiðslunni eftir hamfarirnar. Páll segir eina aðalástæðu tafarinnar vera þá að erfitt var fyrir verksmiðjurnar að nálgast aðföng. Hver bíll sé settur saman úr meira en tíu þúsund hlutum og erfitt hafi verið að nálgast þá frá öðrum löndum eftir jarðskjálft- ann. „Þetta hafði þau áhrif hér á landi að það varð töf á afgreiðslu Land Cruiser og Lexus, en það er verið að vinda ofan af þessu hægt og örugglega,“ segir Páll, en getur ekki gefið upp nákvæma tölu um hversu marga bíla vantar hingað til lands. „Þetta er einhver slatti,“ segir hann. „En á næstu mánuðum verður þetta komið í eðlilegt horf á ný.“ sunna@frettabladid.is Íslendingar bíða eftir lúxusbílum frá Japan Nokkur bið er eftir nýjum Land Cruiserum og Lexusum frá Japan eftir hamfar- irnar þar í mars. Framleiðsla Toyota í landinu féll niður um 50 prósent í maí en er að komast á strik á ný. Bílar sem pantaðir voru hér í vor koma með haustinu. TOYOTUR EFTIR JARÐSKJÁLFTANN Mikill fjöldi nýrra japanskra bifreiða gjöreyðilagðist í jarðskjálftanum í mars. NORDICPHOTOS/GETTY Nýskráningar einungis brot af því sem áður var Tegund nýskráðra 2007 2010 Það sem af er ári 2011 Land Cruiser 644 142 92 Lexus 152 4 8 Í dag kostar Land Cruiser í kringum tíu milljónir króna og Lexus RX rúmar tólf milljónir króna. Heimild: Umferðarstofa Tuttugu silungaflugur að eigin vali hjá Vesturröst Laugavegi 178. Mán.–fös. 09:00–18:00 Laugardaga 10:00–16:00 www.vesturrost.is 20 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið í krafti fjöldans 3.300 kr. GILDIR 24 TÍMA 5.590 kr. 40% 2.290 kr.P IP A R\ TB W A • SÍ A STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþingis segir heimildir í tollalögum til handa landbúnað- arráðherra til að ákvarða tolla á innfluttar landbúnaðarvörur ekki vera í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar um skattlagningar- heimildir. Umboðsmaður hóf skoðun á málinu eftir kvörtun frá Samtökum verslunar og þjónustu vegna þriggja reglugerða sem landbúnaðar- ráðuneytið setti í maí í fyrra. Þær taka til toll- kvóta vegna innflutnings á nautgripa-, svína- og alifuglakjöti, á smjöri og ostum og á unnum kjötvörum og giltu tímabilið 1. júlí 2010 til 30. júní 2011, allar dagsettar 12. maí 2010. Samtök- in gerðu athugasemd við að lagðir væru tollar á tollverð frekar en vörumagn vara sem fluttar væru inn. Meðal annars væri vafasamt að þetta stæðist þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands. Landbúnaðarráðuneytið svaraði því meðal annars til að Jón Bjarnason landbúnaðarráð- herra hafi við ákvarðanir sínar haft í huga fæðuöryggi, atvinnumál og erfiða stöðu í gjald- eyrismálum. Umboðsmaður segir að í ljósi niðurstöðu sinn- ar um að hin tilteknu ákvæði í tollalögum stand- ist ekki stjórnarskrá hafi hann ekki tilefni til að fjalla um þau atriði í kvörtun Samtaka verslun- ar og þjónustu sem lúta að meðferð ráðherrans á valdheimildum sem lögin gefa honum. Hins vegar er því beint til landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra að bregðast við því að lögin samræmast ekki stjórnarskránni. - gar Umboðsmaður Alþingis beinir því til tveggja ráðherra að þeir láti endurskoða lög um tolla í landbúnaði: Segir tollalög andstæð stjórnarskránni JÓN BJARNASON Ákvarðanir landbúnaðarráðherra um tolla á innfluttar landbúnaðarvörur byggja á lögum sem standast ekki stjórnarskrá, segir umboðsmaður Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 31° 26° 24° 22° 22° 19° 23° 21° 25° 22° 27° 31° 32° 22° 23° 21° 24°Á MORGUN víða 5-10 m/s, hvassara SV-til. FIMMTUDAGUR víða 5-10 m/s. 13 14 13 11 11 13 18 13 1715 10 5 3 13 7 6 7 23 6 5 2 14 19 11 14 12 11 12 14 13 17 VINDASAMT Í kvöld fer að rigna vestanlands og verður úrkoma víða í nótt. Hvessir með deginum og í kvöld verður 15-20 m/s SV-til og á ann- nesjum NA-til. Hlýtt NA-til næstu daga bjartast þar en dá- lítil væta V-til. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður EFNAHAGSMÁL Alls urðu 839 fyrir- tæki gjaldþrota fyrstu sex mán- uði ársins. Það er um 51 prósents aukning frá sama tímabili í fyrra þegar 555 fyrirtæki fóru í þrot, samkvæmt útreikningum Hag- stofu Íslands. Alls urðu 137 fyrirtæki gjald- þrota í júní. Það er ríflega 38 pró- senta aukning frá sama mánuði í fyrra, þegar gjaldþrotin voru 99. Flest gjaldþrotanna í júní voru í byggingarstarfsemi og mann- virkjagerð, heild- og smásölu- verslun og bílaviðgerðum. - bj Um 840 fyrirtæki gjaldþrota: Aukning um 51% milli ára Kannabisræktun stöðvuð Lögreglumenn upprættu kannabis- ræktun í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði um helgina. Um áttatíu kannabisplöntur voru fjarlægðar af lögreglunni auk tækja og tóla er tengjast ræktuninni. Húsráðandi, karlmaður um tvítugt, var handtekinn á staðnum og viðurkenndi hann að ræktunin væri á sínum vegum. LÖGREGLUFRÉTTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.