Fréttablaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 8
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR8
Færri eru látnir eftir hryðju-
verkin í Noregi á föstudag en
áður hafði verið talið. Lögregla
greindi frá því í gær að 68 manns
hefðu verið drepnir í Útey og átta
væru látnir eftir sprenginguna í
Ósló. Þó er enn fjölda saknað svo
tala látinna gæti hækkað á ný.
Áður hafði verið greint frá því að
86 hefðu látist í Útey og sjö í Ósló.
Lögreglan sagði í gær að taln-
ing hefði verið ónákvæm þar sem
lögregla hefði lagt aðaláherslu á
að hjálpa þeim sem komust lífs
af. Þá hefur reynst erfitt að bera
kennsl á alla þá sem létust, og
einhverjir þeirra sem saknað
er gætu verið á meðal líka sem
þegar hafa fundist. Fjöldi lög-
reglumanna fínkembdi eyjuna í
gær og áfram var leitað að líkum
við hana.
Anders Behring Breivik kom
fyrir dómara í gær, fyrir luktum
dyrum. Þar var hann úrskurð-
aður í átta vikna gæsluvarð-
hald, þar af í fjögurra vikna ein-
angrun. Hann sagðist ekki vera
sekur af þeim glæpum sem hann
er ákærður fyrir, þar sem hann
hafi viljað bjarga Evrópu frá
múslímskum innflytjendum.
Breivik var sagður rólegur
og yfirvegaður þegar hann kom
fyrir dóminn og sagðist búast við
lífstíðarfangelsi. Í yfirheyrslum
sagði hann að tvær fleiri sellur
væru virkar í samtökum hans,
sem er lýst í yfirlýsingu hans.
Lögregla vildi ekki tjá sig um þá
staðhæfingu í gær. Ekki hefur
verið útilokað að hann hafi átt
sér vitorðsmenn.
Þá hefur komið fram að mark-
mið hans hafi ekki verið að drepa
eins marga og hægt var, heldur
að senda sterk skilaboð sem ekki
væri hægt að misskilja. Skila-
boðin væru þau að á meðan
Verkamannaflokkurinn héldi
áfram stefnu sinni og flytti inn
múslima og skemmdi norska
menningu yrði hann að taka
ábyrgð á þeim landráðum.
Greint var frá því í gær að
hryðjuverkamaðurinn hefði verið
á skrá hjá norsku öryggislögregl-
unni í mars eftir að hann verslaði
við fyrirtæki í Póllandi sem selur
meðal annars efni sem nota má í
sprengjur. Þá fannst ekkert sem
benti til þess að kanna þyrfti það
frekar. Í gær var maður handtek-
inn í Póllandi vegna gruns um að
hann hefði selt Breivik þessi efni.
Misvísandi fréttir bárust af hlut-
deild mannsins í gær en nú hefur
verið greint frá því að hann sé
yfirheyrður sem vitni en ekki
sakborningur. thorunn@frettabladid.is
HRYÐJUVERKAÁRÁS Í NOREGI
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Fyrir börn frá 6 mánaða - 5 ára
Hægt að leggja saman og taka með
Verð frá
16.900
Barnasæti
Breivik segir tvær skyldar
hryðjuverkasellur að störfum
Fjöldi látinna í hryðjuverkum í Noregi fyrir helgi er minni en áður var talið. Enn er þó margra saknað. Ódæðis-
maðurinn kom fyrir dómara í gær og lýsti yfir sakleysi. Hann var á skrá hjá norsku öryggislögreglunni í mars.
DAG WERNø HOLTER Sendiherra Noregs á Íslandi og starfsfólk hans tók þátt í minn-
ingarathöfn við sendiráð Noregs á Fjólugötu í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ódæðismaðurinn í Noregi hefði
átt að fremja sjálfsvíg frem-
ur en að drepa svo marga aðra.
Þetta segir faðir hans í viðtali við
norsku sjónvarpsstöðina TV2.
Faðirinn hefur ekki talað við
son sinn frá því að hann var
fimmtán eða sextán ára gamall.
Hann býr í Frakklandi og segist
aldrei munu hafa samband við
son sinn aftur. Engin venjuleg
manneskja gæti gert nokkuð líkt
voðaverkum hans.
Faðir morðingjans í viðtali:
Hefði átt að
fremja sjálfsvíg
Fréttamaður norska ríkisút-
varpsins, Peter Svaar, lýsti í gær
kynnum sínum af ódæðismann-
inum Breivik, en þeir voru skóla-
bræður.
Svaar segist hafa þekkt allt
aðra hlið á honum sem ungum
dreng, sem hafi ekki verið vond-
ur maður fyrir sautján árum.
Hann hafi verið feiminn og hugs-
að mikið um heilsurækt.
Hann segir allt í áætlunum
morðingjans hafa gengið upp
hingað til og að hann óttist að
enn sé hann að leika á alla. Ekk-
ert sem hann þekki til manns-
ins bendi til þess að hann hafi
verið geðsjúkur heldur sé hann
ískaldur og yfirvegaður.
Þá segir Svaar að Breivik hafi
verið handtekinn fyrir veggja-
krot í miðborg Óslóar sem ung-
lingur og vegna þess hafi faðir
hans hætt að hafa samband við
hann.
Skólabróðir morðingjans:
Var ekki vondur
fyrir 17 árum
Réttarhöldin yfir Anders Breivik
Anders Behring Breivik á yfir höfði sér ákærur fyrir
hryðjuverk fyrir glæpina sem hann framdi í Noregi á
föstudag. Árásirnar tvær kostuðu minnst 76 manns
lífið. Breivik hefur játað verknaðinn en samþykkir ekki
ákærurnar á hendur sér.
25. júlí. Átta vikna gæsluvarðhald samþykkt eftir að
morðinginn kom fyrir dómara, fyrir luktum dyrum.
Læknar munu svo meta geðheilsu hans til að meta hvort
hann sé hæfur til að sitja réttarhöld. Talið er að allt að því
ár geti liðið þangað til réttarhöld yfir honum hefjast.
Hámarksrefsing í Noregi er 21 ár. Morðingjar eru oft
látnir lausir eftir að hafa afplánað meira en helming
dóms. Hægt er að lengja dóma um fimm ár ef fangi er
talinn líklegur til að brjóta af sér á ný.
Ný lög eru í smíðum í Noregi og gera þau ráð fyrir því
að hámarksrefsing fyrir hryðjuverk verði 30 ár. Breivik
verður ekki dæmdur eftir þeim lögum.
Nágranni Anders Breivik íhug-
aði oftar en einu sinni að hringja
í lögreglu. Svein Meldieseth
grunaði að Breivik væri að
aðhafast eitthvað misjafnt á býli
sínu.
„Hann vissi ekkert um land-
búnað og hagaði sér undarlega.
Hann dekkti fyrir gluggana
og læsti alltaf dyrunum á eftir
sér þegar maður hitti hann við
húsið,“ segir Meldieseth í viðtali
við blaðið Østlendingen og bætir
því við að Breivik hafi orðið
pirraður ef menn komu án þess
að hringja fyrst. Sjálfur segist
Breivik í dagbók sinni einmitt
hafa óttast að Meldieseth yrði
tortrygginn og þess vegna gert
varúðarráðstafanir. Fyrrver-
andi eigandi býlisins sagðist
einnig hafa íhugað að gera lög-
reglu viðvart þegar hann sá
mann þar vera að afmá auglýs-
ingatexta af sendibíl. - gar
Tortrygginn nágranni:
Hugleiddi að
vísa á Breivik
Minngarathöfn um fórnar-
lömb sprengingarinnar í Ósló
og fjöldamorðingjans í Útey í
Noregi var minnst í gærmorgun
við sendiráð Noregs í Reykja-
vík. Athöfnin fór fram klukkan
tíu, eða á sama tíma og í Noregi
og annars staðar á Norðurlönd-
unum.
Fólk sem safnaðist saman tók
þátt í einnar mínútu þögn og vott-
aði þannig þeim sem féllu fyrir
illvirkjanum og aðstandendum
þeirra virðingu sína. Sendiherra
Noregs á Íslandi, Dag Wernø
Holter tók á móti fólki og sam-
úðarkveðjum þeirra og blómum
utan við sendirráðið. - gar
Athöfn við sendiráð Noregs:
Fórnarlamba
minnst í gær
BJÖRGUNARFÓLK MINNIST FÓRNARLAMBA Tugþúsundir Norðmanna söfnuðust saman í miðborg Óslóar í gær til að
minnast fórnarlamba hryðjuverkanna á föstudag. Sjúkraflutningamenn voru meðal þeirra sem lögðu blóm við dómkirkjuna og tóku þátt í einnar mínútu
þögn í virðingarskyni við þá látnu. NORDIC PHOTOS/AFP