Fréttablaðið - 26.07.2011, Síða 10
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR10
HRYÐJUVERKAÁRÁS Í NOREGI
Frásagnir eftirlifenda af voða-
verkunum í Útey hafa smám
saman komið fram síðustu daga.
Þær mála mynd af hryllilegum
atburðum en inn á milli má finna
sögur um manngæsku og sam-
hjálp.
Margir lýsa því hvernig þeir
sáu vini sína skotna á hlaup-
um frá árásarmanninum And-
ers Behring Breivik. Aðrir voru
skotnir á sundi frá eyjunni og í
felum í tjöldum sínum eða inni í
skálum. Breivik er lýst sem róleg-
um og yfirveguðum á meðan á
morðunum stóð. Hann hljóp ekki
á eftir þeim sem flúðu þess full-
viss að ekkert skjól væri að finna
á eyjunni. Sumum tókst þó að fela
sig frá honum; undir rúmum, uppi
í trjám og meira að segja inni í
ísskáp.
Þrátt fyrir hamslausa grimmd-
ina virðist Breivik þó hafa verið
fær um að sýna miskunn. Einn
eftirlifenda, Adrian Pracon,
lýsir því þegar Breivik mætti 10
ára gömlum hágrátandi dreng.
Drengurinn sagði að faðir sinn
væri dáinn en hann væri sjálfur
of ungur til að deyja. Breivik leit
á drenginn um stund og ákvað svo
að hlífa honum. Skömmu síðar hóf
hann þó skothríð aftur.
Pracon sjálfur bjargaðist með
naumindum en hann stakk sér til
sunds til að flýja frá árásarmann-
inum. Hann gerði sér grein fyrir
því þegar hann var kominn nokk-
uð frá eyjunni að hann kæmist
ekki alla leið til lands og synti því
til baka. Þegar hann var kominn
aftur á land stóð hann skyndilega
augliti til auglitis við Breivik sem
af einhverjum ástæðum sleppti
því að skjóta og fór í aðra átt.
Pracon faldi sig í flæðarmál-
inu næstu klukkustundina en þá
kom Breivik aftur með byssu
á lofti. Fólk féll allt í kringum
hann og hann lét sig detta og lét
sem dauður væri við hlið fall-
inna félaga sinna. Pracon seg-
ist hafa beðið til guðs að Brei-
vik myndi ekki uppgötva sig en
hann færðist sífellt nær. Pracon
fann andardrátt morðingjans og
hitann frá hlaupinu og þá reið af
skot sem hæfði Pracon í öxlina.
Hann missti heyrnina tímabund-
ið en passaði að hreyfa sig ekki
þrátt fyrir sársaukann og komst
því lífs af.
Einnig hafa komið fram sögur
af fórnarlömbum sem komu særð-
um vinum sínum í skjól. Þá björg-
uðu eigendur báta í nágrenni
Úteyjar nokkrum tugum úr
eyjunni. Þýski ferðamaðurinn
Marcel Gleffe bjargaði til dæmis
20 manns á árabáti sem hann
hafði á leigu. Með líkum hætti
kom Otto Løvik 40 til 50 ungmenn-
um til bjargar. Løvik var í sumar-
leyfi nálægt Útey og hafði aðgang
að báti. Hann þekkti skothljóðin
strax og lét það ekki stöðva sig
þótt Breivik skyti í átt að bátnum.
Løvik segist enn ekki vera laus
við andlit þeirra, sem hann þurfti
að skilja eftir, úr huga sér. Það
sama er sennilega hægt að segja
um flesta sem voðaverkin upp-
lifðu. magnusl@frettabladid.is
Þjóðverji bjargaði 20
ungmennum af Útey
Eftirlifendur atburðanna í Útey hafa síðustu daga sagt sögur af harmleiknum.
Flestar eru hryllilegar og þrungnar sorg en inn á milli voru unnar hetjudáðir.
ÆTTINGJAR SYRGJA Ættingjar fórnarlamba skotárasanna í Útey hafa margir safnast saman við eyjuna síðustu daga til að kveðja
ástvini sína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Allar hellur Steypustöðvarinnar
eru framleiddar samkvæmt
viðurkenndum stöðlum.
4 400 400
Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra segist
ekki hafa tjáð sig mikið um
voðaverkin í Noregi, enda
hafi orð svo sem lítið vægi
í svona harmleik. Hann
segist vera lamaður yfir
tíðindunum og þetta séu
sorglegustu atburðir sem
orðið hafi á Norðurlöndun-
um um áratugaskeið.
„Mér finnst það hvernig
Norðmenn hafa meðhöndlað þetta
mál vera á allan hátt til fyrir-
myndar. Þeir hafa verið varfærnir
í öllum yfirlýsingum og lagt mikla
áherslu á það, sem er alveg hár-
rétt, að við látum ekki svona atburð
hrekja okkur af leið. Við ætlum að
standa vörð um okkar opnu lýðræð-
islegu samfélög, samfélög umburð-
arlyndis þar sem við líðum ekki
kynþáttafordóma, útlend-
ingahatur, eða einhverj-
ar öfgar í skoðunum sem
ekki eiga rétt á sér.“
Steingrímur telur að
atburðirnir eigi að vera
okkur holl áminning um
að gæta hófs í umræðunni
og reyna að ræða mál
yfirvegað og með rökum,
en ekki á þann hátt sem
nærir jarðveg öfga og
ofstækis.
„Það mættu ýmsir skríbentar og
vefmiðlar og jafnvel prentmiðlar
hafa það í huga held ég. Við gerum
samfélagið ekkert betra með því
að draga fram og hampa einhverju
ofstæki og dómhörku og sjónarmið-
um sem eiga lítið skylt við mann-
kærleika, víðsýni og umburðar-
lyndi.“ - kóp
Hryðjuverkin mega ekki hrekja okkur af leið:
Telur Norðmenn
hafa sýnt yfirvegun
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
LONDON, AP José Luis Rodríguez
Zapatero, forsætisráðherra Spánar,
kallaði í gær eftir samevrópskum
viðbrögðum gegn útlendingahatri
og fordómum í kjölfar hinna hrylli-
legu hryðjuverkaárása í Noregi.
„Þetta er einhver alvarlegasti
atburður sem átt hefur sér stað í
Evrópu. Hann kallar á viðbrögð,
evrópsk viðbrögð, til varnar frelsi
og lýðræði og gegn öfgum,“ sagði
Zapatero á blaðamannafundi með
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, í London í gær. Zapatero
hvatti í kjölfarið leiðtoga Evrópu-
ríkja til að sameinast um viðbrögð.
Í kjölfarið vottaði Cameron fórn-
arlömbum árásanna samúð sína og
bætti svo við: „Bretland og Spánn
hafa bæði orðið fyrir barðinu á
hræðilegum hryðjuverkum í fortíð-
inni og ég veit að við munum báðir
bjóða Norðmönnum allan þann
stuðning sem við getum á næstu
dögum.“
Anders Behring Breivik, sem
játað hefur á sig árásirnar, gaf út
á netinu 1500 blaðsíðna stefnuyfir-
lýsingu daginn sem árásirnar áttu
sér stað. Í stefnuyfirlýsingunni
lýsir hann yfir stríði gegn þeim
ríkisstjórnum og stjórnmálaöflum
í Evrópu sem eru umburðarlynd
gagnvart íslam.
Leiðtogar ríkja um allan heim
hafa fordæmt árásirnar á síðustu
dögum en margir hafa endurómað
orð Carls Bildt, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, frá því á föstudag: „Nú
erum við öll Norðmenn.“ - mþl
José Luis Rodríguez Zapatero og David Cameron:
Kalla eftir evrópskri
samstöðu gegn hatri
LONDON Í GÆR Zapatero og Cameron áttu fund í gær og ræddu meðal annars
hryðjuverkin í Noregi. NORDICPHOTOS/AFP