Fréttablaðið - 26.07.2011, Side 15

Fréttablaðið - 26.07.2011, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 26. júlí 2011 15 Nýlega hafa tveir framámenn í lögfræðingastétt tjáð sig um kröfuna um rannsóknarnefnd sem geri úttekt á Geirfinns- og Guðmundarmálunum svonefndu. Þetta eru þeir Róbert Spanó, sem ritaði grein í Fréttablaðið 22. júlí, og Brynjar Níelsson sem skrifaði um það pistil á pressan.is 20. júlí. Róbert segir: „En það er ein- mitt í réttarríki eins og okkar, byggðu á þrígreiningu ríkisvalds, sem opinberar ákvarðanir um að skipa sérstakar rannsóknarnefnd- ir verða að taka mið af því kerfi til úrlausnar mála sem fyrir hendi er lögum samkvæmt.“ Síðar segir hann: „Löggjafinn á ekki að setja á laggirnar rannsóknarnefndir til að yfirfara endanlega úrlausn Hæsta- réttar, æðsta handhafa hins sjálf- stæða dómsvalds.“ Sjálfstæði dómstóla er vissulega afar mikilvægt í réttarríki. Hér gleymist hins vegar önnur hliðin á þeim hugmyndum sem alla jafna liggja til grundvallar þrígreiningu ríkisvaldsins. Nefnilega að grein- arnar þrjár veiti hver annarri aðhald, sem sé nauðsynlegt til að koma í veg fyrir valdníðslu innan einnar þeirra. Brynjar segir í sinni grein: „Ég get þó sagt að í mörgum öðrum sakamálum hafa sakborningar verið sakfelldir á veikari sönnun- argögnum.“ Líti Brynjar svo á að sérhver sakfelling sé fordæmis- gefandi varðandi kröfurnar um sönnunarfærslu er það sannarlega nýstárleg sýn á réttarfar. Ef þetta á hins vegar að afsaka þá hrylli- legu valdníðslu sem átti sér stað í umræddum málum er ekki annað að segja en að slík afstaða sé ekki sæmandi lögmanni, hvað þá að for- maður Lögmannafélagsins haldi henni á lofti. Í Geirfinns- og Guðmundar- málinu var sakfellt fyrir morð, þótt engar vísbendingar séu um að fórnarlömbin hafi látist, nema játningar sakborninga. Slíkar játningar væru auðvitað mikil- vægar ef þær væru trúverðugar. Það eru þær ekki, því nákvæmlega ekkert annað bendir til að glæpur hafi verið framinn, auk þess sem ósannar játningar eru talsvert algengari en ætla mætti, hvað þá þegar beitt er jafn svívirðilegum pyntingum og hér var raunin. Ekki síður alvarlegt er að rann- sóknarlögreglan sýndi með óyggj- andi hætti að hún gat fengið fram þær játningar sem henni sýndist, hversu fjarstæðukenndar sem þær voru. Á meðan sakborningar voru einangraðir hver frá öðrum í gæsluvarðhaldi fékk lögreglan þá alla til að staðfesta tiltekna flókna atburðarás, sem leiddi til langvar- andi gæsluvarðhalds yfir fjórum öðrum mönnum. Síðar kom í ljós að um algeran uppspuna var að ræða. Með því að fá fram játning- ar á slíkum uppspuna sýndu rann- sakendur málsins í eitt skipti fyrir öll að niðurstöður þeirra voru einskis virði. Ljóst er því að lögreglan og dómsvaldið brugðust ekki bara illilega, heldur frömdu hræðileg illvirki á fólki sem átti að njóta verndar réttarríkisins, burtséð frá því hvort það átti nokkra sök í umræddum málum. Af því hversu alvarlegt þetta mál er verður ekki hjá því komist að rannsaka það niður í kjölinn. Til þess ætti að skipa rannsóknarnefnd með víð- tækar heimildir til vitnaleiðslu. Við þessar aðstæður ættu lög- fræðingar fremur að velta fyrir sér (í heyranda hljóði) hvernig hægt sé að leiðrétta svona alvar- leg brot á grundvallarreglum réttar ríkisins, og koma í veg fyrir að þau verði endurtekin. Að minnsta kosti þeir lögfræðingar sem vilja láta líta á sig sem hugs- uði á þessu sviði en ekki viljalausa þjóna kerfis sem hefur svívirt þær grundvallarreglur sem það segist byggja á. Það er líka hollt að hafa í huga að þótt lögfræðingar geti verið sér- fræðingar í því hvernig réttarkerf- ið virkar þá þrýtur sérfræðikunn- áttu þeirra þegar kerfið hættir að virka, eins og það gerði hér. Lögfræði, réttlæti og réttarríki Oddný Sturludóttir borgar-fulltrúi skrifar grein í Frétta- blaðið á föstudag þar sem hún reynir að réttlæta slæleg vinnu- brögð borgarstjórnarmeirihluta Samfylkingar og Besta flokksins vegna fjárhagsáætlunargerðar. Greinin sýnir að borgarfull trúar Samfylkingar láta sér í léttu rúmi liggja að Reykjavíkurborg er komin rúmum fimm mánuðum fram yfir lögbundinn frest vegna skila á þriggja ára fjárhagsáætlun til innanríkisráðuneytisins. Umræddur dráttur vegna fjár- hagsáætlunargerðar er síður en svo eina dæmið um lausatök meirihlutans á fjármálum Reyk- víkinga. Sama dag og grein Odd- nýjar birtist, kom fram í frétt- um að Kauphöllin hefur áminnt Reykjavíkurborg og beitt hana sektarviðurlögum fyrir að birta ársreikning of seint. Áður höfðu fréttir verið sagðar af því að Kauphöllin áminnti borgina fyrir að greina ekki frá milljarða lán- veitingum til Orkuveitunnar í samræmi við reglur. Enn fremur að ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, rannsakar nú hvort umræddar lánveitingar borgarinnar brjóti í bága við EES-samninginn. Afneitun í stað ábyrgðar Eitt er að svo illa sé haldið á málum af hálfu meirihlutans að borgin greiði vanrækslusektir og að yfirvofandi séu frekari viður- lög af hálfu ráðuneytis sveitar- stjórnarmála. Það bætir hins vegar ekki úr skák þegar borgar- fulltrúar meirihlutans bregðast við viðvörunarorðum og óskum, um að þessir hlutir séu tafarlaust lagfærðir í samræmi við skýr lagafyrirmæli, með ásökunum um að um sé að ræða óþarfa upphróp- anir og upphlaup. Oddný gerir mikið úr því í grein sinni hvað það sé erfitt fyrir borg- ina að skila þriggja ára áætlun og reynir síðan, eins og Dagur B. Eggertsson, að kenna um óvissu vegna tilflutnings málefna fatl- aðra, sem átti sér stað um síðustu áramót. Enn skal minnt á að Reykja- víkurborg hefur áður tekið við stórum málaflokkum frá ríkinu án þess að það hafi sett áætlana- gerð sveitarfélagsins í uppnám. Þá var það ekki bara Reykjavík- urborg heldur öll önnur sveitar- félög, sem tóku við umræddum málaflokki. Flest ef ekki öll önnur sveit- arfélög landsins hafa nú skilað umræddri þriggja ára áætlun og ekki er vitað til þess að neitt þeirra, utan Reykjavíkurborg, reyni að nota málefni fatlaðra sem afsökun fyrir því að skila ekki lögbundnum gögnum til ráðu- neytisins. Samfylkingin í afneitun Ég er ein af þeim sem telja að aðild að Evrópusambandinu verði til hagsbóta fyrir Íslendinga. Það er ekki vegna þess að ég telji að við verðum rík af sjóðum sam- bandsins og það er heldur ekki mín skoðun að sjálfræði okkar muni aukast. Ég tel ekki heldur að ESB sé svar við öllum okkar vanda- málum og þaðan af síður tel ég að sjónarhorn okkar muni ráða ferð- inni innan sambandsins. Ég tel aftur á móti að Ísland hafi mikið að bjóða grönnum sínum í Evrópu og ég tel að við höfum skyldur til að miðla þeim verð- mætum sem við höfum. Þá er ég ekki að tala um orku, fisk eða land- búnaðarvörur heldur lýðræðishefð og friðarboðskap sem Íslendingar hafa varðveitt í margar kynslóðir, ekki bara í orði heldur líka í fram- kvæmd. Markmið Evrópusambandsins er að jafna og bæta kjör í aðildar- ríkjunum. Evrópusambandið byggir á þeirri sýn að friður á milli sjálfstæðra ríkja verði best tryggður með samskiptum og sam- vinnu, gagnkvæmum skilningi og jafnræði í réttindum og lífskjör- um. Íslendingar hafa staðið sig mjög vel í að móta reglur um réttindi fólks á vinnumarkaði og miðlað þannig áherslum íslensks vinnu- markaðar um velferð og réttindi inn í samevrópskar reglur. Aðild ASÍ að Evrópusambandi stéttar- félaga hefur gefið sambandinu tækifæri til að standa þá vakt með miklum sóma. Á sama hátt getum við nýtt sérþekkingu okkar og reynslu til að hafa áhrif í friðar- og lýðræðismálum innan Evrópu- sambandsins. Ég tel að á síðustu árum sé hlut- verk Íslands og annarra Norður- landaþjóða í friðar-, lýðræðis- og velferðarmálum enn brýnna en áður. Á síðasta áratug hafa komið inn í sambandið fátækari þjóðir sem ekki hafa búið við lýðræði og markaðsbúskap síðustu áratugi. Með þeirri breytingu heyrast fjöl- breyttari sjónarmið sem munu hafa áhrif á mótun Evrópusam- vinnunnar á komandi árum. Ég trúi því að Íslendingar vilji vera hluti af Evrópu þar sem raun- verulegt lýðræði ríkir og mann- réttindi í heiðri höfð. Nýleg frétt um starfskonu á hóteli í Reykjavík hefur vakið okkur öll til umhugs- unar um að í Evrópu býr fjöldi fólks sem ekki er mótað af sömu reynslu, lífsgæðum og lífssýn og við Íslendingar. Jöfnuður í land- inu, frelsi og mannréttindi eru gildi sem allir stjórnmálaflokk- ar á Íslandi hafa reynt að varð- veita með einum eða öðrum hætti frá því að við fengum sjálfstjórn, það hefur verið okkur mikil gæfa. Að tryggja sterkari rödd þess- ara gilda er hlutverk okkar – það gerum við ekki sem áhorfendur innan Evrópusambandsins heldur aðeins sem virkir þátttakendur. Hlutverk Íslands innan ESB Dómsmál Einar Steingrímsson stærðfræðingur Sveitarstjórnarmál Kjartan Magnússon borgarfulltrúi ESB-aðild Inga Sigrún Atladóttir bæjarfulltrúi í Vogum Opnunartími: Mán-Fös. kl: 10-18 Laug-Sun. kl: 12-16 Fossháls 5-7 l 110 Reykjavík Sími 551 5600 l utilegumadurinn.is Eximo hjólhýsi á einstöku verði! með kaupauka að verðmæti 250.000kr K au p au ki f yl g ir E xi m o 52 0L o g 46 0 hj ó lh ýs um Létt og meðfærileg hús, • auðveld í drætti. Mjög gott verð.• Sterklega smíðuð hús.• Falleg hönnun.• 91 Lítra ísskápur.• Gasmiðstöð m/ Ultra heat • (rafm. hitun) Litaðar rúður• 12 og 220 Volta rafkerfi.• Selerni• Heitt og kalt vatn• E xi m o 3 70 Verð: 2.998.000kr Verð: 2.398.000kr Verð: 2.998.000kr E xi m o 5 20 L E xi m o 5 20 B Verð: 2.798.000kr E xi m o 4 60 Upp selt Kaupauki: Fortjald og sólarraflaða Kaupauki: Fortjald og sólarraflaða

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.