Fréttablaðið - 26.07.2011, Side 20

Fréttablaðið - 26.07.2011, Side 20
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR20 Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is ALDOUS HUXLEY rithöfundur (1894-1963) fæddist þennan dag. „Þeir sem kunna að lesa geta eflt sjálfa sig, fjölgað möguleikum sínum, gert lífið fyllra, þýðingarmeira og áhugaverðara.“ Merkisatburðir 1847 Líbería lýsir yfir sjálfstæði. 1936 Pétur Eiríksson, 19 ára, syndir frá Drangey til lands, svokall- að Grettissund. Þegar hann var 9 ára gekk hann við hækjur. 1945 Úrslit tilkynnt í bresku þingkosningunum sem fram höfðu farið 5. júlí. Verkamannaflokkurinn vinnur stórsigur og Winston Churchill fer frá völdum. 1951 Á Siglufirði er haldið fyrsta vinabæjamót á Íslandi á vegum Norræna félagsins. 1952 Farouk Egyptalandskonungur segir af sér og Fuad sonur hans tekur við. 1953 Vígð er 250 metra löng brú yfir Jökulsá í Lóni, þá næst- lengsta brú landsins. 1959 Eyjólfur Jónsson sundkappi syndir frá Kjalarnesi til Reykja- víkur, um 10 kílómetra leið. Sundið tekur um fjóra og hálfa klukkustund. 1963 Harður jarðskjálfti verður í Skopje í Júgóslavíu (nú í Lýð- veldinu Makedóníu). Alls farast 1100 manns í skjálftanum. 1983 Einar Vilhjálmsson setur Íslandsmet í spjótkasti, 90,66 metra, á úrvalsmóti Norðurlanda og Bandaríkjanna. Einar er sigurvegari mótsins. 1992 Fyrsta teygjustökk á Íslandi í tilefni af fimm ára afmæli Hard Rock Café á Íslandi. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Marta Hannesdóttir Sólvallagötu 60, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 27. júlí kl. 13.00. Margrét Jónsdóttir Árni Ingólfsson Gunnar Jónsson Kristín Kristinsdóttir Lárus Jónsson Sonja Egilsdóttir Ágúst Jónsson Ingibjörg Benediktsdóttir Guðrún Jónsdóttir Ari Guðmundsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Elísabet Jónsdóttir áður til heimilis á Ölduslóð 17, Hafnarfirði, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði hinn 22. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnar Örn Gunnarsson Erna Guðmundsdóttir Brynjar Gunnarsson Helga Birna Gunnarsdóttir Axel Kristjánsson Ingibjörg Gunnarsdóttir Ragnar Gíslason Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Egill Jónasson Stardal cand.mag., Brúnalandi 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn 23. júlí. Inga Fanney Egilsdóttir Jónas Egilsson Kristrún Þórdís Egilsdóttir Stardal tengdabörn og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ásta Karlsdóttir Árskógum 6, Reykjavík, lést sunnudaginn 24. júlí á Landspítalanum í Reykjavík. Haukur Bergsson Eva Hauksdóttir Viðar Freyr Sveinbjörnsson Bergur Hauksson Auður Harðardóttir Ólafur Steinar Hauksson Bergþóra Hafsteinsdóttir Sigurður Hauksson Kristín Axelsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ragnheiður S. Jónasdóttir Álfhólsvegi 84, Kópavogi, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut þann 21. júlí síðastliðinn. Útförin fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 2. ágúst kl. 13.00. Ólöf B. Þorleifsdóttir Brynjar S. Þorleifsson Vilhjálmur Þorleifsson Eva H. Þorleifsdóttir Guðmundur B. Kjartansson Leifur H. Þorleifsson Hlíf B. Óskarsdóttir Gróa K. Þorleifsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðlaug Eggertsdóttir Andrésbrunni 12, Reykjavík, lést laugardaginn 23. júlí á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 29. júlí kl. 15.00. Kristján Ragnarsson Gunnar S. Jónsson Þuríður M. Jónsdóttir Kristján Gunnarsson Heiða Björk Jónsdóttir Þröstur I. Jónsson Kolbrún Jónsdóttir ömmubörn og langömmubörn. Alúðarþakkir sendum við öllum þeim sem heiðruðu elskulegan son, bróður, mág og frænda, Braga Kristjánsson Sólvallagötu 9, Keflavík, við athöfn frá Keflavíkurkirkju 23. júní sl. Starfsfólk Sjúkrahúss Keflavíkur sýndi Braga og okkur fádæma umhyggju og virðingu. Fyrir það er þeim sérstaklega þakkað. Öllum ættingjum og vinum eru sendar þakkir fyrir hlýjar kveðjur. Guðbjörg Þórhallsdóttir Baldur Kristjánsson Svala Björgvinsdóttir Sigríður og Sif Baldursdætur „Nú er ég orðin hálffimmtug og það er dálítið stórt skref en bara mjög ánægjulegt,“ segir Ingveldur Ýr hress þegar hringt er í hana í tilefni fjöru- tíu og fimm ára afmælisins í dag. Hún kveðst hafa þjófstartað því síðasta laugardag með 50 manna veislu heima hjá sér. „Ég er með stóran pall sem ég tjaldaði yfir en rokið var þá svo mikið að það var ekkert hægt að vera úti svo allir voru bara sáttir inni,“ segir hún. „Þetta var rok ársins, en senni- lega bara af því að árið mitt er búið að vera svo stormasamt. Ég var nefnilega að ganga frá skilnaði í sömu viku. Það var reyndar gert í sátt og samlyndi en skilnaður er samt alltaf drama.“ Söngkennslustofan inn af íbúðinni hennar Ingveldar Ýrar kom að góðum notum og breyttist í veislusal að henn- ar sögn en skyldi hún hafa ætlað að grilla í rokinu líka? „Nei, ég var með hlaðborð af heimatilbúnu góðgæti. Þar voru til dæmis nokkrir hráfæðisréttir í anda Sollu Eiríks, alls konar græn- metisbökur, flatkökur með hangikjöti, sænskar kjötbollur og litlar kökur, þannig að þetta var svona veglegur puttamatur. Ég var örugglega í ein- hverja tvo sólarhringa að elda en það er áhugamál hjá mér þó að ég hafi aldrei haldið almennilega upp á afmæl- ið mitt áður. Ég var í útlöndum þegar ég var þrítug og voða róleg á fertugsaf- mælinu. Mér skilst að Þjóðverjar haldi upp á 44, 55 og 66 og svo framvegis og ég fer ekkert alltaf hefðbundnar leiðir í lífinu svo ég er að hugsa um að halda alltaf upp á hálfa tuginn hér eftir.“ Mikið var sungið í afmælinu á laug- ardag, að sögn Ingveldar Ýrar, enda margt söngvant fólk þar samankomið. „Ég er stolt af því að geta eignað mér um tuttugu manna sönghóp sem æfir vikulega og kemur fram við ýmis tæki- færi með miklum tilþrifum. Þetta er sönghópurinn Spectrum sem nú er að æfa fyrir húllumhæ á menningarnótt. Þá förum við á milli staða og syngj- um.“ gun@frettabladid.is INGVELDUR ÝR JÓNSDÓTTIR SÖNGKONA: ER FJÖRUTÍU OG FIMM ÁRA Í DAG Þjófstartaði afmælinu sínu INGVELDUR ÝR „Ég er að hugsa um að halda alltaf upp á hálfa tuginn.“ FRÉTTABLAÐIÐ/HAG

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.