Fréttablaðið - 26.07.2011, Page 22

Fréttablaðið - 26.07.2011, Page 22
26. júlí 2011 ÞRIÐJUDAGUR2 Hrotur eru algengar hjá eldra fólki en um 60 prósent karlmanna og 40 prósent kvenna eldri en sextíu ára hrjóta. Hávaðinn sem af því hlýst nær að jafnaði 6o desibilum en getur þegar verst lætur náð 80 desibilum. 85 desibil eða meira þykja hættuleg mannseyranu. Heimasíðan kidshealth.org hefur að geyma fjölda gagn- legra upplýsinga sem snúa að börnum, unglingum og foreldrum þeirra. Þar er fjallað um næringu, heilsu, skyndihjálp, sjúkdóma og andleg málefni svo dæmi séu nefnd. Síðuna heimsækja 700.000 manns á dag. Heimild: www.kidshealth.org ÍSLENSKT HUNDANAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli gott í þjálfun og í leik VINSÆLVARA Sumar útsalan er hafin 50 - 70% afsláttur ÚTSÖLULOK–VERÐHRUN Kjólar Skokkar Mussur Toppar Bolir Galla kvartbuxur o.m.fl. Við erum á Facebook Aðeins þrjú verð á útsöluvörum Fyrsta ThunderCat-keppnin hér- lendis var haldin um helgina. Um er að ræða hraðakeppni á léttum tvíbytnum með fimmtíu hestafla mótor sem ná allt að hundrað kíló- metra hraða. Tveir þátttakendur eru á hverjum bát, stýrimaður og aðstoðarmaður. Annar stýrir bátn- um en hinn situr fremst og sér til þess að báturinn haldi jafnvægi. „Brautin liggur í gegnum öldurót og bátarnir takast á loft. Sportið útheimtir þol, styrk, tækni og sam- vinnu og meiri ærsla- og gusugang er varla hægt að hugsa sér,“ segir Leifur Dam Leifsson, annar stofn- enda Thunder Cat Iceland. Átta lið skráðu sig til þátt- töku og fóru þeir Leifur og Arnar Ragnars son, í liðinu Basil Attack, með sigur af hólmi. „Keppnin var hörð og ljóst að það eru margir efnilegir. Við þurfum því að hafa okkur alla við í næstu keppnum sem áætlaðar eru á Menningar- og Ljósanótt, segir Leifur. Farið var að keppa á Thunder- Cat í Suður-Afríku fyrir þrjá- tíu árum en síðan hefur íþróttin breiðst út til Nýja-Sjálands, Ástr- alíu, Evrópu, Norðurlandanna og nú síðast til Íslands. „Þetta er vin- sælasta bátasport í heimi og nú er Ísland hluti af samfélaginu og á vísan þátttökurétt á Evrópumót- um.“ Leifur og samstarfsfélagi hans, Bogi Baldursson hjá GG sjósport, hafa yfir tveimur tvíbytnum að ráða og hvetja fólk til að hafa sam- band á gummibatar@gummibatar. is vilji það prófa og jafnvel skrá sig til keppni. Þeir munu halda utan um keppnir hér heima og vera tengiliðir við önnur lönd. Á slóð- inni www.sjosport.is er að finna frekari upplýsingar um íþróttina. vera@frettabladid.is Hraði og gusugangur Fyrsta ThunderCat-keppnin var haldin úti á sundunum við Reykjavík um helgina en Thundercat-keppni er vinsælasta bátasport í heimi. Það útheimtir þol, styrk, tækni, samvinnu og mikinn hraða. Brautin er lögð í gegnum öldurót og bátarnir takast á loft. Bátarnir eru búnir fimmtíu hestafla mótor. Leifur og Arnar voru með besta tímann og sigruðu í fyrstu ThunderCat-keppn- inni hér á landi. Leifur segir adrenalínið fara á fullt í þessu skemmtilega sporti en að fyllsta öryggis sé þó gætt. FRÉTTABLADID/PJETUR FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRA SKÚBB Meiri Vísir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.